Hannes Steindórsson kynnir með stolti:
Mjög mikið endurnýjuð þriggja herbergja jarhæð með sérinngangi, suður garði og suður verönd ásamt bílastæði á eignarlóð í fallegu steyptu fjórbýlishúsi við Reynimel 64.
Húsið er byggt árið 1985 og því nýrra en flest hús í hverfinu.
Eignin er nýlega tekin í gegn að innan. Allar innréttingar hurðir og skápar, öll gólfefni, bæði flísar og parket, öll blöndunartæki, ofnar yfirfarnir.
Veggir að hluta, skipt um tengla og ramma, dregið í rafmagn að hluta, íbúðin máluð, ný ljós í alla íbúðina ofl.
Forstofa: Sérinngangur í flísalagða forstofu með hvítum skápum.
Hol: Parketlagt hol í miðju íbúðar.
Skrifstofu/Tölvuaðstaða: Parketlagt rými sem gæti nýst sem tölvuaðstaða.
Stofa: Rúmgóð og mjög björt parketlögð stofa.
Borðstofa: Parketlögð borðstofa í opnu rými með stofu,
útgengt út á verönd og garð.Eldhús: Mjög falleg innrétting, gott skápapláss, rými fyrir innbyggða uppþvottavél og ísskáp.
Baðherbergi: Flísalagt rúmgott baðherbergi með gráum flísum, innréttingu og skápum ásamt sturtu og glugga.
Svefnherbergi 1: Parketlagt 11 fm svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 2: Parketlagt 10 fm svefnherbergi með skápum.
Þvottahús: Flísalagt sér þvottahús í íbúð.
Geymsla: Sér geymsla undir skyggni við inngang íbúðar.
Verönd og garður: Sér verönd og garður til suðurs.
Bílastæði: Íbúðinni fylgir eitt bílastæði.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson hannes@fastlind.is s.699-5008