Reynihraun 8, Bifröst, 311 Borgarbyggð. Um er að ræða mikið endurnýjaða 2ja herbergja endaraðhús byggt úr steinsteyptum einingum 44,6 fm að stærð skv. skráningu FMR. byggt árið 2002. Hitaveita er á svæðinu.
Nánari lýsing: Stofa og eldhús mynda alrými. Eldhúsinnrétting nýleg og með litlu helluborði, uppþvottavél og ofni. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdum vaski í innréttingu, stæði fyrir þvottavél, sturtuklefa og upphengdu salerni. Svefnherbergi er með fataskáp.
Eignin hefur nýlega verið mikið endurnýjuð, nýtt gólfefni á öllum gólfum, parket á öllum gólfum nema flísar í baðherbergi, ný eldhúsinnrétting, baðherbergi að fullu endurnýjað, íbúðin máluð að innan og utan.
Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða hvort sem er til heilsársbúsetu eða til frístundanota. Bifröst er í fögru umhverfi. Óþrjótandi möguleikar eru til útivistar með vinsælum gönguleiðum að Hreðavatni, á Grábrók og að fossinum Glanna. Margvísleg þjónusta er á svæðinu s.s. leikskóli, hótel með veitingastað og golfvöllur.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is. Nes fasteignasala. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.