LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is kynna:Virkilega fallegt 50 fm heilsárs sumarhús við Reykjarhólsveg 14 í Varmahlíð. Bústaðurinn er í skjólsælu sumarbústaðarlandi fyrir ofan byggðina í Varmahlíð. (sjá kort aftast í myndaalbúmi). Húsið stendur nokkuð hátt á 4.500 fm leigulóð og þar af leiðandi er ágætis útsýni úr bústaðnum í dag.
Bústaðurinn sem hefur fengið gott viðhald og talsverða endurnýjun, var byggður árið 2006 sem bjálkahús á steyptum þverbitum en hefur síðan verður klæddur og einangraður að utan með Canexel klæðningu. Góð afgirt verönd er við bústaðinn og heitur pottur, útgengi frá baðherbergi. Varmaskiptir er á heita vatninu og á ofnakerfinu og rennur affall af heita vatninu í pottinn. Falleg lýsing er umhverfis húsið með tímastillingu.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu. Nýleg eldhúsinnrétting með bakarofni, helluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél. Húsgögnin eru einnig nýleg og fylgja með í kaupum, þ.á.m. þrjú rúm, flatskjár, ísskápur, þvottavél, vandað stækkanlegt borðstofuborð og sófi ásamt öðrum húsgögnum fyrir utan persónulega muni. ✅ Fallegur og sjarmerandi 50 fm heilsárs sumarhús í Varmahlíð
✅ Húsið stendur á 4.500 fm leigulóð
✅ Afgirt verönd með heitum potti
✅ Góð nýting á rýmum og tvö góð svefnherbergi
✅ Stutt í þjónustu á borð við veitingasölu, verslun og sundlaugNánari lýsingForstofa: Harðparket á gólfi.
Herbergi I: Innaf forstofu, rúmgott með tveimur einbreiðum rúmum og fataskáp, harðparket á gólfum.
Alrými: Með eldhúsi og stofu, harðparket á gólfi. Grár hornsófi, áfastur flatskjár á vegg, ísskápur, vandað borðstofuborð sem er stækkanlegt.
Eldhús: Nýleg grálit IKEA innrétting með bakarofni, helluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél.
Svefnherbergi II: Innaf alrými, rúmgott, harðparket á gólfi. Gott tvíbreitt rúm.
Baðherbergi: Með salerni, sturtuklefa og baðinnréttingu, harðparket á gólfi. Útgengi á pall þar sem heitur pottur er afgirtur.
Lóð: Möl í heimreið, annars er lóðin að öðru leyti með villtum gróðri.
AfhendingEignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Sækja HÉR söluyfirlit samstundisHafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 /
julius@landmark.isMonika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 /
monika@landmark.isLáttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat