Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega og bjarta íbúð á 2.hæð (gengið upp hálfa hæð) í litlu fjölbýli við Reykás í 110 Reykjavík. Eginin er skráð 83,4 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 76,1 m2 og geymsla 7,3 m2, og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, þv... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu fallega og bjarta íbúð á 2.hæð (gengið upp hálfa hæð) í litlu fjölbýli við Reykás í 110 Reykjavík. Eginin er skráð 83,4 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 76,1 m2 og geymsla 7,3 m2, og skiptist í anddyri, stofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, þvottahús í sér rými og baðherbergi með baðkari og sturtuklefa. Íbúðin er björt og rúmgóð með stórum suð-austur svölum með fallegu útsýni til fjalla og yfir Rauðavatn. ATH! Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með ljósum flísum á gólfi og þreföldum góðum fataskáp með spegla hurðum.Stofa: Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými. Stofan er einkar björt með góðum gluggum og eikarparketi á gólfi. Gegnið er út á stórar svalir frá stofunni.Eldhús: nýleg innrétting, ágætur borðkrókur, gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru flísar. Baðherbergi: ágæt innrétting, baðkar og flísalagður sturtuklefi. Á gólfi og á veggjum eru flísar.Hjónaherbergi: ágætir fataskápar, eikarparket á gólfi, gluggi til suð-austurs með opnanlegu fagi. Útgengi á svalir íbúðar. Svefnherbergi: eikarparket á gólfi, gluggi til suð-austurs.Þvottaherbergi: í sér rými innan íbúðar, ágæt innrétting með vinnuborði.Í kjallara húseignar er sérgeymsla íbúðar sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á bak við hús er stór lóð og fyrir framan hús eru bílastæði.Falleg íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í fallega náttúru. Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953, Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.