Domusnova Borgarnesi og Sjöfn Hilmarsdóttir lögg.fasteignasali kynna: Réttarholt 6, 310 Borgarnes. Fjölskylduvænt, fimm herbergja 204,8 fm. einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Húsið er einstaklega rúmgott og vel skipulagt. Skjólsamur garður með timburveröld. Eignin hefur verið endurnýjuð talsvert á undanförnum árum. Fyrirhugað fasteignamat 2027 er kr. 86.600.000.-** BÓKIÐ SKOÐUN ** Hægt að skoða með skömmum fyrirvara
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf. // s. 691-4591 // sjofn@domusnova.isRéttarholt 6 er
204,8 fm. steypt einbýlishús á einni hæð að meðtöldum 54,4 fm. stakstæðum bílskúr (2004). Húsið skiptist í anddyri, gestasalerni, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Upptekið loft í stofu og borðstofu. Tvöfaldur bílskúr með inngangshurð á móts við aðalinngang hússins.
Nánari lýsing:Anddyri: Gólfhiti. Flísar á gólfi.
Gestasaleri: Snyrtileg innrétting. Vegghengt salerni. Gólfhiti. Flísar á gólfi.
Stofa/hol: Rúmgott og bjart rými. Arinn. Parket á gólfi.
Borðstofa: Útgegnt á timburverönd. Parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting með viðarborðplötu. Bakaraofn í vinnuhæð. Borðkrókur. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Útgengt í garð. Gólfhiti. Tengi fyrir heitan pott. Flísar á gólfi.
Geymsla/búr: Inn af þvottahúsi. Hillur. málað gólf.
Baðherbergi: Hvít innrétting. Vegghengt salerni. Flísalögð sturta. Fibo baðplötur á veggjum. Flísar á gólfi.
Gangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi. Parket á gólfi.
Bílskúr: Stakstæður 54,4 fm. bílskúr frá 2004 með tveimur bílskúrshurðum og inngangshurð á hliðinni. Stúkað af geymslurými. Hiti og rafmagn. Steypt gólf.
Lóðin: Snyrtileg 770 fm. lóð, malarplan fyrir framan bílskúr og steypt stétt að aðalinngangi, stór timburveröld með skjólvegg fyrir framan hús og grasflötur fyrir aftan og meðfram húsi. Snúra í bakgarði.
Hér er fallegt einbýlishús sem hefur fengið gott viðhald og margt verið endurnýjað að innan sem og utan, m.a. skipt um innréttingar og endurnýjað eldhús, baðherbergi, gestasalerni og þvottahús, innihurðar og gólfefni, gólfhiti settur í anddyri, gestasalerni, baðherbergi og þvotthús. Nýlega hafa vatnsinntök, hluti ofna og ofnalagna verið endurnýjað. Að utan hefur húsið verið múrviðgert og málað. Skipt hefur verið um nokkur gler í gluggum. Áhugasömum er bent á að senda á netfangið
sjofn@domusnova.is og fá söluyfirlit eignar sent.
Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning Nánari upplýsingar og/eða bóka skoðun:Sjöfn Hilmarsdóttir löggiltur fasteignasali / s.691 4591 / sjofn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is