Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs 780-2700 kynna :
Gullfalleg útsýnishús á efstu hæð (þriðju hæð) við Rauðás 12, 110 Rvk.
Íbúðin sjálf sem er töluvert endurnýjuð er á tveimur hæðum með 5 svefnherbergjum, stórri stofu, opnu eldhúsi og sjónvarpsholi, þvottahús er innan íbúðar og sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameignilgeri vagna- hjólageymslu. Frábært útsýni og góðar suð/vestursvalir. Allar frekari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is
NÁNARI LÝSING : Komið er inn í forstofu og opið alrými sem tengir annarsvegar svefnherbergisgang og hinsvegar eldhús, borðstofu og stofu, grunnflötur þessarar hæðar er 118 fm. Eldhús er stórt og endurnýjað (2019) með fallegri innréttingu með innbyggðum tækjum, góðu bekkplássi og eyju þar sem 3-4 geta setið við. Stórir gluggar á eldhúsi og borðstofu sem er í beinu framhaldi af eldhúsinu tryggja gott birtuflæði inn í eignina. Stofan er opin og rúmgóð með stórum gluggum og hurð út á svalir sem liggja í L meðfram suð-vestur hlið íbúðarinnar. Gólfefni á neðri hæð var endurnýjað á sama tíma og eldhúsið, þar er harðparket frá Birgisson.
Á svefnherbergisgangi eru 3 herbergi, hjónaherbergi með skápum, tvö barnaherbergi, annað minna en hitt töluvert stærra með gluggum í tvær áttir og frábæru útsýni. Baðherbergi sem var endurnýjað árið 2017 er flísalagt með baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni, góðri innréttingu og glugga með opnanlegu fagi. Þvottahús er flísalagt með innréttingu og góðri aðstöðu fyrir þvott og lín. Hringstigi er milli hæðanna en efri hæðin sem er 36,5 fm. skv. skrá fasteignaskrár Þjóðskrár en nýtist afar vel þar sem hluti henna er undir súð en þar eru m.a. góðar geymslur. Á efri hæðinni eru 2 góð barnaherbergi með skápum/hirslum meðfram súðinni. Opið hol er í miðju rýmisins sem nýtist nú sem sjónvarpshol og fjölskyldurými. Eigninni fylgir einnig sérgeymsla í kjallara sem er ekki inni í birtum ferm. skv. fasteignaskránni.
Sameiginleg hjólageymsla og stór sameiginleg geymsla í kjallara.
Þetta er einstaklega fjölskylduvæn og góð eign á frábærum stað með fallegu útsýni yfir Rauðavatn. Frábær eign sem vert er að skoða.
Framkvæmdir seinustu ára samkvæmt seljanda:
Húsið var sprunguviðgert, málað og skipt um 4 glugga 2024.
Þak og þakkantur var málað árið 2019.
Stigagangur málaður og lagt nýtt teppi á sameign árið 2019.
Þakkantur endurnýjaður að hluta og yfirfarinn árið 2017.