Miklaborg kynnir: Einstaklega sjarmerandi, hlý og björt íbúð á besta stað við Rauðarárstíg gegnt Lögreglustöðinni. Íbúðin hefur verið endurnýjuð af kostgæfni, ný eldhúsinnrétting, baðinnrétting, ofnar, gólfefni og hurðar svo eitthvað sé nefnt. Íbúðin nær í gegn og er staðsett milli Laugavegs og Bríetartúnar í fallegu fjölbýlishúsi. Bílastæði eru víða, bæði við Rauðarárstíginn sem og á bak við húsið.
Gangstétt, gata og bílastæði fyrir framan húsið er upphitað með affalli húsa við götuna og hið sama á við um gangstétt í inngarði á bak við hús. Fjórar hleðslustöðvar eru fyrir framan húsið.
Nánari lýsing:
Eldhús: Ný eldhúsinnrétting, hvít að lit með svörtum höldum og borðplötum. Handgerðar postulíns fílsar á milli neðri og efri skápa sem og sitt hvoru megin við glugga sem vísar út í bakgarð hússins þar sem er Skúlagarður sem segja má að sé eitt af földu leyndarmálum miðbæjarins, skjólgóður og barnvænn garður. Gott vinnupláss, ný eldunar- og blöndunartæki og pláss fyrir innbyggða uppvottavél og ísskáp.
Stofa: Rúmgóð með útsýnisglugga sem vísar í vestur út Bríetartúnið yfir til Skúlagötu og sjávar.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi sem eru mjög rúmgóð, annað þeirra vísar út að Rauðarárstíg en hitt inn að inngarði í austur.
Baðherbergi: Til hliðar við anddyri og eins og annað þá hefur það verið endurnýjað með glæsilegum hætti. Fallegar flísar á gólfi og veggjum. Skúffuinnrétting með handlaug ofan á og stór spegill á vegg. Ný sturta með Unidrain niðurfalli, upphengd salernisskál og handklæðaofn.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara sameignar sem og sérgeymsla íbúðar.
Ekkert er skemmtilegra en íbúðir í eldri hluta Reykjavíkur sem hafa verið endurnýjaðar með vandvirkni og glæsileika. Íbúðin sem um ræðir er svo sannarlega gott dæmi um slíkt.
Stutt er í ýmis konar þjónustu t.d. er Bónus og Krónan innan við 11 mínútna göngufjarlægð ásamt apóteki, stofnbrautir, heilsugæslu og annað. Frábær kaup á miðbæjaríbúð sem bíður nýrra eigenda sem vilja láta fara vel um sig.
Nánari upplýsingar veitir Jón Rafn fasteignasali í síma 695-5520 eða jon@miklaborg.is






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu































| Íbúð | Herbergi | Stærð | Síðasta ásetta verð | Síðasti kaupsamningur |
|---|---|---|---|---|
| 3 | 72,50 m² | 71.500.000 kr. 10. maí 2026 | 33.000.000 kr. 18. júlí 2018 |
| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 10.05.2026 Nánar | 72,5 m² | 986.207 kr. | 71.500.000 kr. |
0402 | - | - | - | 52.000.000 kr. 29. janúar 2024 |
0001 | - | - | - | - - |
0002 ![]() | 3 | 49,70 m² | 54.500.000 kr. 9. desember 2023 | - - |
0102 | - | - | - | 27.700.000 kr. 3. febrúar 2015 |
0202 | - | - | - | 16.300.000 kr. 22. febrúar 2007 |
0301 | - | - | - | - - |
0302 | - | - | - | 18.048.000 kr. 5. apríl 2011 |
0201 | - | - | - | - - |
0401 | - | - | - | 26.780.000 kr. 1. apríl 2016 |




































