Íbúð
Mjög vel skipulögð neðri sérhæð í fallegu húsi. Fjögur svefnherbergi, stórt hol (miðja íbúðarinnar), tvær stofur, aukaherbergi og snyrting í kjallara. Tvennar svalir (út frá stofu í suður, út frá hjónaherbergi í austur). Aukin lofthæð í íbúðinni.
Stofa
Björt rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Útgengi út á fallegar bogadregnar svalir í suður. Tengd borðstofu með fallegri innfeldri rennihurð.
Eldhús
Stórt eldhús með dúk á gólfi. Hvít eldri innrétting. Tveir gluggar færa fallega birtu inn. Tengi fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi
Tvö barnaherbergi með parketi. Hjónaherbergi með parketi og fataskápum, útgengt út á morgunsvalir í austur.
Baðherbergi
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, með glugga og baðkari.
Þvottahús
Sameignlegt þvottahús í kjallara þar sem hver með sína vél.
Geymsla
Parketlagt herbergi/geymsla í kjallara með aðgangi að snyrtingu sem fylgir íbúðinni.
Bílskúr
Rúmgóður bílskúr (sá sem er hægra megin). Fullbúinn með hita, heitu og köldu vatni. Nýleg rafmagnstafla og 3ja fasa rafmagn. Tveir gluggar til austurs og sér inngönguhurð. Bílastæði fyrir framan bílskúrinn.
Svalir/þak
Tvennar svalir: fallegar bogadregnar svalir í suður (út frá stofu) og morgunsvalir í austur (út frá hjónaherbergi). Hitaþráður í niðurföllum.
Önnur herbergi
Hol (miðja íbúðarinnar) með parketi og góðum skápum. Rúmgott forstofuherbergi með parketi. Borðstofa parketlögð. Aukaherbergi í kjallara.
Tæki
Tengi fyrir uppþvottavél í eldhúsi.
Svæði
Frábær staðsetning á Laugarnesinu við Laugardal. Göngufæri í Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, leikskóla og íþróttaaðstöðu Þróttar og Ármanns í Laugardal. Stutt í Kaffi Laugalæk, Pylsumeistarann, Brauð og Co, Fiskbúðina, Ísbúðina, Laugardalslaugina, World Class, Kaffi Flóru, Heilsugæsluna á Kirkjusandi og alla útivist í Laugardalnum.