Eignaver 460-6060
Ránargata 30 íbúð 101 Akureyri.
Rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á jarhæð í þríbýli á góðum stað á Eyrinni. Stærð er samtals 110,5 fm. Nánari lýsing:
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Tveir sameignlegir inngangar, eldhús, stofu, hol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymsla í kjallara.
Þvottahús er í sameign með íbúð á miðhæð.
Eldhúsið er bjart með fallegri hvítri innréttingu, flísar á gólfi og milli skápa. Innbyggður nýlegur ísskápur sem fylgir með við sölu.
Stofan er rúmgóð og björt, gluggar í suður og vestur, parket á gólfi.
Holið er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfi. Hjónaherbergi er rúmgott og með nýlegum góðum fataskáp.
Baðherbergið er með ljósum flísum á gólfi og veggjum. Nýleg hvít innrétting, upphengt WC, nýleg blöndunartæki, nýlegt sturtugler við baðkar, nýr handklæðaofn og vifta.
Þvottahús er sameiginlegt með íbúð á miðhæðinni. Þar er bakdyrainngangur og þaðan er gengið niður í kjallara
Geymslur: gott geymslurými er í kjallara hússins. Kjallarinn er í sameign með miðhæðinni en sérgeymsla fylgir íbúðinni.
Annað:
- Eignin var töluvert endurnýjuð árið 2007. Þá var skipt um gólfefni, eldhúsinnréttingu, flestar innihurðar o.fl.
- Tveir sameignlegir inngangar, annar er á aðalhlið hússins og er hann í sameign með risíbúð, hinn er frá bílastæði í gegnum þvottahús og í sameign með íbúð á miðhæð.
- Þvottahús er í sameign með íbúð á miðhæð.
- Þak var málað og yfirfarið 2023
- Húsið var málað að utan fyrir u.þ.b. 5-6 árum síðan.
- Hellulagt bílastæði á norðurhluta lóðarinnar.
- Nýleg Qudo 22 kw hleðslustöð fyrir rafbíla í séreign íbúðar.
- Sameiginlegur geymsluskúr er á lóð.
- Ofnar endurnýjaðir.
- Ljósleiðari komin í íbúð.
Eignin er í
einkasölu hjá Eignaveri.
Upplýsingar veita eftirtaldir aðilar:
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is