Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Raftahlíð 49, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum og hlutdeild í sameign.
Vel skipulögð fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð ásamt bílskúr, alls 137,9 fm.
Samkvæmt skráningu hjá HMS er íbúðin skráð 111,2 fm. og bílskúr 26,7 fm. Húsið var byggt árið 1978.
Leigulóð hússins er 376 fm.Snyrtileg og vel við haldin eign.Íbúðin skiptist í þrjú herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, forstofu og þvottahús. Gengið er inn í rúmgóða flísalagða
forstofu. Við forstofu er parketlagt
herbergi og lítið
þvottahús.
Björt og rúmgóð
stofa sem er parketlögð. Góð lofthæð er í stofu. Útgengt er úr stofu á
sólpall sem snýr í vesturátt.
Í
eldhúsi er hvít innrétting með dökkri borðplötu og borðkrók.
Herbergisgangur er parketlagður.
Tvö parketlögð
svefnherbergi eru á herbergisgangi, annað þeirra með góðum skápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innrétting við vask og sturtu.
Bílskúr er frágenginn og með millilofti. Gönguhurð er á suðurhlið skúrsins.
Rafmagnshurðaopnari á bílskúrshurð.
Lóð er skjólgóð, vel gróin og snyrtileg. Góður sólpallur vestan við húsið.
Framan við húsið er steypt bílaplan með snjóbræðslu. Hægt er að leggja tveimur til þremur bílum á planið.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is
Sunna Björk Atladóttir, lögmaður og löggiltur fasteignasali
Eva Dögg Bergþórsdóttir, löggiltur fasteignasali
Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala