Mjög falleg 4ra herbergja íbúð á íbúð á 4. hæð (efstu) við Ráðhústorgið í miðbæ Akureyrar. Skemmtilegar svalir meðfram stofu með útsýni yfir Ráðhústorgið og göngugötuna. Íbúðin selst með innbúi að undanskildum persónulegum munum. Eignin er samtals 108,5 m² að stærð og mikið endurnýjuð að innan, nýlega hefur húsið verið múrviðgert og málað að utan.
Eignin er með útleigusíðu sem getur fylgt og eru bókanir góðar í sumar.
Stofan er rúmgóð og björt með glæsilegu útsýni til tveggja átta og bogadreginn veggur með fallegum gluggum setur fallegan svip á rýmið. Ljóst harðparket er á gólfi.
Eldhús er í opnu rými með stofu og borðstofu og þar er sprautulökkuð hvít innrétting með innfelldri uppþvottavél og innfelldum ísskáp sem fylgja með. Ljóst harðparket er á gólfi, og úr eldhúsinu er farið út á bogadregnar svalir sem ná fyrir hornið á Hafnarstræti og Ráðhústorgi. .
Svefnherbergin eru þrjú, þar af eitt mjög rúmgott með góðum fataskáp og útgengi út á svalir til suðurs og tvö ágætlega rúmgóð herbergi, öll með ljósu harðparketi á gólfum.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og á hluta veggja. Hvítur sprautulakkaður skápur undir vaska og baðkar með sturtuaðstöðu með gleri.
Þvottahús og geymsla er með dúk á gólfi og er innaf hjónaherbergi. Þar er góður skápur.
Annað:- Mjög skemmtileg orlofsíbúð.
- Stutt í alla helstu þjónustu.
- Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan.
- Eignin var múrviðgerð og máluð að utan nýlega.
- Gluggar hafa verið endurnýjaðir.
- Húsbúnaður fylgir með (að undanskildum persónulegum munum)
- Sameiginlegur inngangur frá Ráðhústorgi.
- Hitaveita er sameiginleg með íbúð á 3. hæð.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf