Fasteignasala Þórshafnar kynnir:
Pálmholt 6er 84,8 fm, þriggja herbergja endaíbúð í steyptu raðhúsi, byggðu 1983.
Íbúðin hefur verið talsvert endurnýjuð síðustu ár og er nánari útlistun á framkvæmdum í söluyfirliti.
Eignin skiptist í: Forstofa, fatahengi með skóhillum, nýlegar flísar á gólfi. Til vinstri úr forstofu er gengið í þvottahús/geymslu, flísar á gólfi, nýlegur veggskápur, hillur og vinnuborð. Inn af forstofu er parketlagt hol, til hægri úr því er gengið í eldhús, þar er parket á gólfi, nýleg Ikea innrétting, bekkjarplötur frá Fanntófell og 80 cm breitt spanhelluborð. Í eldhúsi er lúga uppá loft, með útdraganlegum stiga og þar er geymslupláss undir risi.
Inn af holi er rúmgóð stofa með parketi á gólfi, úr stofu eru dyr til suðurs að sólpalli sem nær meðfram allri íbúðinni.
Til vinstri úr holi er komið inn á lítinn gang, við hann eru dyr að tveimur svefnherbergjum og baði. Minna svefnherbergið er 7 fm, parket á gólfi og lítill fataskápur, stærra herbergið er 11,9 fm, parket á gólfi, gluggar á tveimur hliðum til austurs og suðurs og tveir fataskápar.
Baðherbergið er með vegghengdu salerni og baðkari, flísar á gólfi og þremur veggjum, veggjaþiljur ofan baðkars. Lítil innrétting undir og ofan vasks.
Einangraður geymsluskúr úr timbri var byggður við íbúðina framan við þvottahús, þar er c.a. 9 fm geymslupláss í upphituðu rými.
Tvær aðrar breytingar eru frá meðfylgjandi grunnmynd af íbúðinni, veggur milli búrs og eldhúss var fjarlægður og eldhúsið stækkað sem því nemur, einnig var bætt við glugga á austurhlið stærra svefnherbergis.
Gólfhiti er í forstofu, þvottahúsi og eldhúsi, önnur rými hituð með þilofnum.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.