**OPIÐ HÚS SUNNUDAG 24. APRÍL FRÁ KL 17:00 - 17:30*** Ögurás 3 Garðabæ, glæsileg 4ra herb. íbúð, mikil lofthæð og sérinngangur. Íbúðin er á 2. hæð, þar sem stórbrotið útsýni nýtur við úr stofu að Bessast., Gálgahr. og að Snæfellsjökli. Gott skipulag, forstofu, hol, þrjú svefnherbergi sem eru á gang... Sýna meira
**OPIÐ HÚS SUNNUDAG 24. APRÍL FRÁ KL 17:00 - 17:30*** Ögurás 3 Garðabæ, glæsileg 4ra herb. íbúð, mikil lofthæð og sérinngangur. Íbúðin er á 2. hæð, þar sem stórbrotið útsýni nýtur við úr stofu að Bessast., Gálgahr. og að Snæfellsjökli. Gott skipulag, forstofu, hol, þrjú svefnherbergi sem eru á gangi, fatah./geymsla, bað/þvottahús ásamt glæsilegu alrými, eldhús og stofur. Glæsileg íbúð, mikið endurnýjuð 2020/2021, umfjöllun um hana á samfélagsmiðlum svo eftir hefur verið tekið. Frábær staðsetning á holtinu við stórt grænt svæði. Nánari upplýsingar um eignina veitir Jórunn lögg. fasteignasali í síma 845-8958 eða Húsið: er Húsið hannað af Bjarna Snæbjörnssyni. tveggja hæða steinsteypt íbúðarhús. Loftplata efri hæðar er steinsteypt nema yfir stofum þar sem eru niðurklædd hallandi loft. Húsið Ögurási 1-7 Garðabæ, hýsir 16 íbúðir, 8 á hvorri hæð. Tvær íbúðir á hæð í hverju húsnúmeri. Inngangur hverrar íbúðar er beint að utan, af palli við útitröppur fyrir íbúðir á 2. hæð og undir pallinum fyrir íbúðir á 1.hæð. Hjóla- og sorpgeymslur eru á sameiginlegri lóð. Nánari lýsing á eigninni: Gengið er upp eina hæð á veglegan yfirbyggðan stigapall. Hátt og reisulegt þak er einnig yfir stærstum hluta stigans. Sérinngangur af stigapalli. Forstofan tekur vel á móti með góðum fataskápum. Forstofan er opin inn í alrýmið sem er einstaklega glæsilegt með allt að 4,2m lofthæð. Eldhúsið er allt hið glæsilegasta með vönduðum tækjum. Í eldhúsi er eyja. Stofur eru mjög rúmgóðar og bjartar, þaðan er útgengt út á svalir (efitrmiðdagssól). Svefnherbergin, bað og geymsla eru saman á gangi. Geymslunni hefur verið breytt að hluta til í fataherbergi. Hjónaherbergið er mjög rúmgott 15,9 fm með góðum fataskápum. Barnaherbergin tvö eru bæði björt og rúmgóð, annað er 8,3 fm og hitt er 9,3 fm. Baðherbergi með þvottahúsi innaf. Baðherbergið var endurnýjað á afar smekklegan máta,hita motta í gólfi, ný blöndunartæki og innrétting undir hand ásamt steypri handlaug. Góð snyrtiaðstaða á baði með sturta og spegill fyrir ofan handlaug. Parket á gólfum nema á votrými en þar eru flísar. Hiti er í stétt á bílaplani.Húsfélag: Í húsinu er virkt húsfélag í umsjón rekstarfélags. Heildarkostnaður af húsfélagi ásamt framkvæmdasjóði er kr. 27.980-Hverfið: Sérlega vel hefur tekist til með skipulag Ásahverfis. Kerfi göngustíga um hraun og græn svæði liðast um hverfið og tengist friðlandinu í Gálgahrauni. Þá er stutt í glæsilega göngustíga meðfram strandlengjunni í Sjálandshverfi.Um er að ræða stórglæsilega mikið endurnýjaða íbúð með lofthæð allt að 4,2m og útsýni. Einstaklega vel skipulögð eign á þessum vinsæla stað.Allar nánari upplýsingar veitir Jórunn lögg. fasteignasali í síma 845-8958 eða Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% fyrstu kaup / 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar eru mismunandi eftir lánastofnunum frá kr 30 - 81 þúsund. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.