*FALLEG OG BJÖRT ENDAÍBÚÐ ÁSAMT GÓÐUM BÍLSKÚR* Hús fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og bjarta 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli í Ofanleiti, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 127,4 fm. að meðtöldum bílskúr sem er 21,3 fm. Húsinu hefur verið vel við haldið. Rúmgóðar vestursvalir er... Sýna meira
*FALLEG OG BJÖRT ENDAÍBÚÐ ÁSAMT GÓÐUM BÍLSKÚR* Hús fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og bjarta 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð í góðu fjölbýli í Ofanleiti, ásamt bílskúr. Eignin er samtals 127,4 fm. að meðtöldum bílskúr sem er 21,3 fm. Húsinu hefur verið vel við haldið. Rúmgóðar vestursvalir eru með við á gólfi. Fallegt úsýni er til Esjunnar frá norður gluggum íbúðarinnar. Sérgeymsla, á sömu hæð, er með opnanlegum glugga. Sérlega vel um gengin íbúð og snyrtileg sameign. Hiti er í gangstétt framan við húsið. Sameiginlegt leiksvæði með leiktækjum er með íbúakjarnanum í Ofanleiti. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í þjónustu og verslun. Í næsta nágrenni er Kringlan, heilsugæsla, Versló, Borgarleikhúsið, Félagsmiðstöð Hvassaleiti 56-58, Fossvogsdalur með skemmtilegum gönguleiðum, o.fl. Endurnýjað og viðgert að sögn seljenda:Árið 2018 var húsið viðgert og málað, bæði múr og þak og sameign einnig máluð inni. Utanhússframkvæmdir 2018 voru teknar út af verkfræðistofu sem hélt utanum framkvæmdirnar frá upphafi til enda. Allar nánari upplýsingar veitir Eggert Ólafsson, í síma: 893 1819 eða Nánari lýsing: Gengið er til íbúðar, upp tvær hæðir, í snyrtilegum stigagangi. Hol er með hvítum fataskáp og opið inn í stofu/borðstofu. Björt stofa/borðstofa er opin inn í hol og með útgengt á rúmgóðar vestursvalir. Í eldhúsi er sérsmíðuð hvít innrétting, sprautulökkuð árið 2020, flísar milli efri skápa og eldhúsbekks og tengi fyrir uppþvottavél. Þvottaherbergi er inn af eldhúsi, með hvítum skápum og hillum. Í baðherbergi er nýlegur hvítur skápur undir vask, baðkar, flísalagður sturtuklefi, opnanlegur gluggi, flísar upp veggi og á gólfi sem var flotað 2018 er fallegur dúkur. Hjónaherbergi er með handlökkuðum hvítum lín- og fataskáp. Tvö barnaherbergi, bæði með hillum á vegg, en annað með skrifborðshorni og hvítum upphengdum skáp. Parket er á gólfum í íbúð, nema á þvottaherbergi þar sem er korkdúkur og á baðherbergi er dúkur. Á sömu hæð er sérgeymsla með góðu hilluplássi og stórum opnanlegum glugga. Á jarðhæð er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.Bílskúr: Með gönguhurð, geymslulofti, fjarstýrðum hurðaopnara, heitu og köldu rennandi vatni, hita og nýlegu epoxy á gólfi.Annað: Innihurðir og fataskápar var hvítlakkað af málarameistara. Samkvæmt Fasteignaskrá Íslands er íbúð 99,6 fm., geymsla 6,5 fm. og bílskúr 21,3 fm., eða samtals 127,4 fm.Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4-0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá, sjá t.d. á heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.