Jón Smári Einarsson lgf. s. 8606400 og Fasteignaland kynna eignina Oddsholt 54, 805 Selfoss, 50 fm sumarhús skammt frá Borg í Grímsnesi.Lýsing:Um er að ræða fallegt sumarhús á
7.550 fm. eignarlóð úr jörðinni Minni Borg Grímsnesi.
Skv, skráningu HMS er birt stærð hússins 41,4 fm, en byggt var við það um 9 fm yfir inngang í húsið þannig að það er í dag um
50 fm auk um 6 fm sérstæðs geymsluskúrs á lóðinni.
Húsið er byggt úr timbri árið 1993 og er klætt að utan með standandi timburklæðningu.
Að innan er húsið klætt með máluðum panil, harðparket er á öllum gólfum.
Eignin skiptist í
forstofu,
geymslu með frystiskáp,
baðherbergi með sturtu og
tvö svefnherbergi með fataskápum.
Stofan er björt og falleg og samliggjandi við eldhús í opnu rými með góðri lofthæð, eldhús er með hvítlakkaðri innréttingu.
Í húsinu er 50 lítra hitakútur frá árinu 2011, hitað er upp með loft í loft varmadælu frá Rafstjórn ehf. Húsið er byggt af Borgarhúsum ehf.
Allur frágangur við húsið er til fyrirmyndar, á lóðinni er fallegur trjágróður og er hún afgirt og mjög skjólsæl.
Góða aðkoma og
gott bílaplan innan lóðar.
Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið/fjarstýring). Frábær staðsetning.
Árgjald til sumarnúsafélagsins fyrir 2025 er kr. 25.165,-
Möguleiki er að fá hluta af innbúi með í kaupum á eigninni.
Eignin Oddsholt 54 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 221-6761, birt stærð 41.4 fm.
Staðsetning og nærumhverfi:Fjarlægð frá Reykjavík er ca 70 km sé ekið um Hellisheiði.
Á Borg er glæsileg sundlaug, einnig er stutt í gólfvellina t.d. í Kiðabergi og Öndverðanesi.
Stutt í alla þjónustu á Selfossi sem er aðeins í ca 24 km. fjarlægð.
Nánari upplýsingar veitir:Jón Smári EinarssonLöggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.iss. 860-6400 Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 .
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.