Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Oddabraut 19, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða gott og vel skipulagt 6 herbergja einbýlishús á tveimur hæðum með bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 246,3 fm og þ.a. er íbúðarhluti 202 fm. og bílskúr 44,3 fm. Garðurinn er fallegur og skjólsæll með nýjum afgirtum suður sólpall á baklóð. Einstaklega vel staðsett hús miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug og verslanir.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXSkipulag eignar:
Neðri hæð: Forstofa, stórt svefnherbergi (gamli bílskúr) og geymsla inn af því, þvottahús, gestasalerni, hitakompa og bílskúr.
Efri hæð og efri pallur: Stofa / borðstofa, eldhús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og gangur.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:Forstofa: Komið er inn í rúmgóða forstofu með stiga upp á efri hæð, fatahengi, flísar á gólfi.
Svefnherbergi 5: Stórt svefnherbergi, fataskápur, stigi niður í geymslu, á teikningu er þetta gamli bílskúrinn, parket á gólfi.
Geymsla: Rúmgóð geymsla inn af herbergi.
Þvottahús: Rúmgott, vinnuborð og vaskur, hillur sem fylgja með, flísar á gólfi.
Gestasalerni: Innrétting, upphengt salerni, flísar á gólfi og salerniskassa.
Hitakompa: Hitaveitugrind.
Bílskúr: Stærð 44,3 fm, kalt vatn, hiti (affall), gönguhurð af sólpalli á baklóð, bílskúrshurðaopnari, ómálað gólf.
Efri hæð:
Stofan / borðstofa: Stór og björt stofa, innfelld lýsing í lofti, parket á gólfi.
Eldhús: Endurnýjað 2020. Falleg svört / viðar lituð innrétting og stór eyja með skúffum, innbyggð uppþvottavél, tvöfaldur ísskápur sem fylgja með, bakaraofn, comby ofn / örbylgjuofn, háfur og spanhelluborð, borðkrókur, innfelld lýsing í lofti, útgengi út á sólpall á baklóð, flísar á gólfi.
Baðherbergi: Svört innrétting, baðker, flísalagt í hólf og gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott, er á efri palli, hvítir fataskápar, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi, er á efri palli, hvítur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, er á efri palli, hvítur fataskápur, útgengi út á norður svalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Gangur / stigi: Parket á gólfi.
Húsið: Húsið er steinsteypt og er byggt 1965 og bílskúr 1988. Húsið er á tveimur hæðum og á efri hæð er gengið upp á efri pall með þremur svefnherbergjum.
Lóð: Falleg og gróin 757,9 fm lóð. Framan við húsið er stór hellulögð innkeyrsla og steypt stétt að húsi, norður sólpallur framan við húsið. Á baklóð er stór og skjólgóður suður sólpallur sem byggður var 2025.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi: * 2025 Nýr sólpallur á baklóð. Lagt rör fyrir heitan pott.
* 2020 Gluggar endurnýjaðir í eldhúsi. Nýir gluggar í stofu fylgja með óuppsettir.
* 2020 Eldhús endurnýjað m.a ný eldhúsinnrétting, uppþvottavél, spanhelluborð og háfur.
* 2019 Gestasnyrting endurnýjuð að hluta.
* Nýjar flísar á forstofu, stiga upp á efri hæð og eldhúsi.
* Þakjárn hefur verið endurnýjað nýlega.
Hér er um að ræða rúmgóða og vel staðsetta fjölskyldueign. Örstutt er í leikskóla, grunnskóla, sundlaug og íþróttahús. Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.