Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg, mikið endurnýjuð eign á frábærum stað á 252 fm eignarlóð við Nýlendugötu. Um er að ræða hæð og ris með sérinngangi í tvíbýli. Miklar endurbætur hafa verið unnar á eigninni bæði að innan og utan á undanförnum árum. Staðsetning eignarinnar er einstök á þessum rólega stað en þó örstutt í menningu, veitingastaði, verslun, þjónustu og höfnina. Eign með mikinn sjarma sem vert er að skoða.
**Sækja söluyfirlit**Nánari lýsing:Aðalhæð:Forstofa: Sérinngangur inn í forstofu með skápum og eikarparketi á gólfi.
Hol: Eikarparket á gólfi og fallegir gluggar í tvær áttir. Núverandi eigandi hefur notað krók inn af holi fyrir gestasvefnsófa.
Eldhús: Falleg viðarinnrétting með granítborðplötu og spanhelluborði, eikarparket á gólfi.
Borðstofa/stofa: Björt og rúmgóð með einstaklega fallegri gluggasetningu og eikarparketi á gófli.
Ris:Fallegur tréstigi liggur upp í ris.
Baðherbergi: Nýuppgert og flísalagt að hluta, ný innrétting, baðkar m/sturtu og tengi fyrir þvottavél, dúkur á gólfi og gólfhiti. Góður gluggi og sjálfvirk loftræsting.
Opið rými: Risið er að mestu opið og bjart rými í dag en eitt svefnherbergi er þó afmarkað með fallegri rennihurð. Auðveldlega er hægt að bæta við fleiri herbergjum í risinu.
Geymslurými: Undir súð.
Lóð: Skjólgóður og fallegur garður. Borgarland framan húss er einstaklega snyrtilegt og fallega frágengið með hellulögn og lýsingu. Gangstígur í borgarlandi er upphitaður. Gróðurhús á lóð þarfnast viðgerðar. Epla-, peru-, kirsuberja- og plómutrjám hefur verið plantað í garði.
Framkvæmdir:Nýlega var þak hússins endurnýjað. Skipt hefur verið um útihurð, rafmagnstafla endurnýjuð og dregið í nýtt rafmagn í risi. Gluggar hafa nýlega verið endurnýjaðir að hluta. Útitröppur eru nýlega endurmúraðar. Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar sem og brunnur. Bætt hefur verið við opnanlegu fagi í glugga í risi, sem er fullnægjandi stórt fyrir flóttaleið við eldsvoða. Drenað hefur verið við framhlið hússins.
Kjallari húss er steyptur, 1. hæð er úr holsteini og ris úr hleðslusteini. Múrhúð er meðhöndluð með Innerseal. Þakið er krosslektað með viðhaldsfrírri álklæðningu og andandi vind- og rakasperru. Loftaklæðning er kvistalaus birkikrossviður. Útveggir í risi eru nýyfirfarnir og meðhöndlaðir með aquafin, einangraðir, pússaðir og málaðir með kalkmálingu í fallegum litum.
Nánari upplýsingar:Lilja Guðmundsdóttir lögg. fasteignasali, sími:
649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook