Valborg ehf. kynnir eignina Nýlendugata 6, 101 Reykjavík, kjallari með sérinngangi, samtals um 59 ferm. merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Mikið endurnýjuð og hugguleg neðri sérhæð með sérinngangi á góðum stað í miðborg Reykjavíkur.... Sýna meira
Valborg ehf. kynnir eignina Nýlendugata 6, 101 Reykjavík, kjallari með sérinngangi, samtals um 59 ferm. merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Mikið endurnýjuð og hugguleg neðri sérhæð með sérinngangi á góðum stað í miðborg Reykjavíkur. Frábær fyrstu kaup. Bókið skoðun.Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, viðskfr. og löggiltur fasteignasali í síma 8954000, tölvupóstur .Að sögn fyrri seljanda hefur eftirfarandi verið gert fyrir eignina á sl árum.Eldhús, baðherbergi, gólfefni endurnýjuð.* 2023 voru skólp- og frárennslislagnir endurnýjaðar.* 2022 var þak endurnýjað, gluggar pússaðir, grunnaðir og lakkaðir, sprungu og múrviðgerðir ásamt vatnsvörn sett utan á múrinn.* 2021 var suðurhlið hússins drenuð.* Raflagnir og rafmagnstafla endurnýjað af fyrri eiganda.* Jarðhæð með góðu aðgengi.Eignin Nýlendugata 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-0522, birt stærð 58.6 fm.Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/ borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi.Forstofa er flísalögð með geymsluskáp.Eldhús er með innréttingu, helluborði, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél og parket á gólfi. Eldhúsið er opið að hluta inní stofu.Borðstofa / stofa eru í rúmgóðu og björtu rými með parket á gólfi.Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.Baðherbergi er flísalagt og er með gólfhita og "walk-in"-sturtu, innréttingu með handlaug og upphengdu Wc. Þar er einnig gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Garður er rúmgóður og vel gróinn. Þar er einnig sameiginlegur geymsluskúr.Frábærlega staðsett eign í göngufæri við miðbæ Reykjavíkur. Þá er stutt í góðar göngu-og hjólaleiðir.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.