LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir lögg. fasteignasali kynna virkilega fallega endurnýjaða fjögurra herbergja 106,9 fm íbúð í kjallara í góðu þriggja íbúða fjölbýlishúsi við Nýbýlaveg 86 í Kópavogi. Íbúðin hefur alveg verið tekin í gegn, t.a.m. gluggar, gólfefni, innréttingar og tæki ... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir lögg. fasteignasali kynna virkilega fallega endurnýjaða fjögurra herbergja 106,9 fm íbúð í kjallara í góðu þriggja íbúða fjölbýlishúsi við Nýbýlaveg 86 í Kópavogi. Íbúðin hefur alveg verið tekin í gegn, t.a.m. gluggar, gólfefni, innréttingar og tæki auk þess sem allar lagnir hafa verið endurnýjaðar, vatns- og frárennslis- og raflagnir og gólfhiti lagður í íbúðina með stýringu í hverju herbergi. Húsið að utanverðu hefur verið málað, drenlagnir lagðar í kringum húsið, þak yfirfarið og málað. Sjá neðar nánari lista yfir endurnýjun sem gerð hefur verið á árinu 2021. Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu innan íbúðar. Sameiginlegt þvottahús í sameign. Hol er parketlagt. Geymsla innan íbúðar, parket á gólfi. Eldhús og stofa er í stóru og björtu opnu rými. Eldhúsinnrétting er ný, hvít mött með góðu skápa- og skúffurými, span helluborði, háf yfir úr burstuðu stáli, bakarofni í vinnuhæð, góðum búrskáp og er tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Sér rafmagnstafla er í eldhúsi en það var fært frá öðrum stað innan íbúðarinnar. Vandaðar ítalskar flísar eru á vegg fyrir ofan borðplötu. Harðparket á gólfi. Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Verönd er yfir sérafnotareit eignarinnar (skráð sólstofa sem ekki var byggð), sunnan megin við húsið, hellulögð með snjóbræðslulögnum ásamt rafmagns- og vatnslögnum fyrir heitan pott. Garður fyrir framan er afa skjólsæll og í sameign þessara þriggja íbúða hússins. Svefnherbergin er þrjú, öll rúmgóð og eru fataskápar í tveimur þeirra, harðparket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, náttúrusteinn á gólfi og vandaðar ítalskar flísar á veggjum og kringum bað. Vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa, falleg viðarinnrétting og línskápur, baðkar með sturtu yfir og glerskilrúm. Þvottahús er í sameign, mjög snyrtilegt með sér tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Birt stærð íbúðar er 106,9 merkt 0001 skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Eftirfarandi endurnýjun hefur átt sér stað árið 2021: Gluggar og opnanleg fög. Svaladyr, útbúið útgengi í garð.Sérafnotareitur fyrir framan eign, hellulögð verönd með snjóbræðslulögnum, lögnum fyrir heitan pott og rafmagn á verönd. Þarf bara að tengja.Dren í kringum húsið.Frárennslislagnir endurnýjaðar út í götu. Vatnslagnir og blöndunartæki.Danfoss gólfhiti og stýring í hverju herbergi.Rafmagn dregið nýtt í allt, dósir, tenglar og slökkvarar endurnýjaðir, sums staðar fært til og bætt við. Allar innréttingar, þ.m.t. eldhús, baðherbergi, fataskápar, innihurðir. Öll gólfefni, þ.m.t. harðparket, flísar og teppi á sameign við inngang. Útidyr. Innihurðir í sameign lakkaðar, þvottahús tekið í gegn og gólf lökkuð. Húsið málað.Þak yfirfarið og skipt um nagla sem þurfti.Þakrennur.Möl á bílastæði austan við húsið.Harðparket og innihurðir frá BirgissonEldhúsinnrétting, fataskápar og baðinnrétting frá Ikea. Grohe blöndunartæki. Eldhústæki úr Heimilistækjum. Fyrirhugað fasteignamat 2022: 45.450.000 kr. Allar nánari upplýsingar veita:Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali sími 823-2600Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali sími 823-2800Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA