Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s:862 1996 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu alls 36,0 fm hesthús í Norðurtröð 18, 800 Selfoss. Staðsett rétt við reiðhöll Sleipnis. Húsið er 36 fm byggt úr timbri árið 1977. Eldri innréttingar með tveimur rúmgóðum stíum. Snotur flíslögð kaffistofa með lítilli innréttingu og vaski. Hlaða/hnakkageymsla með hurð fyrir rúllur.
Stórt sameiginlegt gerði. Steypt stétt framan við hús. Sameiginlegt haugstæði við enda hússins.
Á Selfossi er mjög skemmtilegt hesthúsahverfi með virkilega öflugu hestamannafélagi þar sem búið er að byggja upp glæsilega aðstöðu fyrir félagsmenn.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 steindor@husfasteign.is
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.