Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Norðurgata 51 e.h. - Falleg og björt fjögurra herbergja efri sérhæð í tvíbýlishúsi á Eyrinni á Akureyri - stærð 140,6 m²Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu innan íbúðar auk geymslu og sameiginlegs þvottahúss á jarðhæð.
Nánari lýsing:Forstofan er á jarðhæð með flísum á gólfi. Einnig er stigauppganga og stigapallur flísalagður og þaðan er gengið út á steyptar suð-austur svalir
Holið er rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi og er það alveg miðsvæðis í eigninni.
Stofan og borðstofan eru bjartar og rúmgóðar með harð parketi á gólfum og gluggum til suðurs og vesturs. Í borðstofu er nýleg innrétting með miklu skápaplássi.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og góðri innréttingu og glugga til tveggja átta.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfum. Fjórfaldur fataskápur er í hjónaherberginu.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með góðri innréttingu með miklu skápaplássi, wc, baðkari með sturtutækjum og opnanlegum glugga.
Þvottahúsið er á hæðinni með dúk á gólfi, góðri innréttingu með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og opnanlegum glugga.
Sér geymsla er á hæðinni, þar eru hillur og tengill þar sem í dag er frystikista.
Undir stiga er köld geymsla og þar inn af er aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og geymslu.
Annað:- Góð staðsetning þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og miðbæinn
- Björt og rúmgóð efri hæð með sér inngangi
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.