Nýtt á skrá! Nónsmári 11 Kópavogi / Rúmgóð og glæsileg 2ja herb. íbúð með suðursvölum!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 73,8 fermetra 2ja herbergja íbúð með rúmgóðum svölum til suðausturs í nýlegu lyftuhúsi við Nónsmára 11 í Kópavogi sem er byggt af KS verktökum ehf. Íbúðin er björt og með stórum gluggum til suðausturs. Virkilega fallegur og vandaður frágangur á íbúð og sameign. þvottarými inn af baðherbergi. Rúmgott svefnherbergi með skápum á heilan vegg sem ná upp í loft. Vandað eldhús með miklu skápaplássi og stórri eyju. Baðherbergi flísalagt í gólf og veggi. Myndavéladyrasími er í húsinu.
Um er að ræða fallega íbúð á eftirsóttum stað efst í Smárahverfi í Kópavogi.
Nánari lýsing: Forstofa: Með harðparketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Alrými er bjart og rúmgott með opnu eldhúsi við stofu og stórum gluggum til suðausturs. Útgengi á góðar svalir til suðurs/suðausturs.
Eldhús: Með afar fallegri HTH eldhúsinnréttingu með stórri eldhúseyju. Harðparket á gólfi og innfelld lýsing í loftum. Innbyggður AEG kæliskápur með fyrsti, innbyggð uppþvottavél, stál AEG bakaraofn. spansuðu helluborð og eyjuháfur.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og stórum gluggum til suðausturs. Rúmar setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir og innfelld lýsing í loftum.
Svalir: Snúa til suðurs/suðvesturs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með vönduðum innbyggðum Grohe sturtutækjum og glerhurð. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn. Úloftun.
Þvottarými: Er staðsett inn af baðherbergi. Flísar á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, góð innrétting, vinnuborð og vaskur.
Svefnherbergi: Er rúmgott með harðarparketi á gólfi, góðum skápum á heilan vegg og innfelldri lýsingu í loftum. Gluggi til suðausturs.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er rúmgóð, eða 8,9 fermetrar.
Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur er mjög snyrtilegur með flísum og teppi. Myndavéladyrasími er í húsinu. Lyklalaust aðgengi í sameign við inngang. Snjóbræðsla undir stétt og nóg af sameiginlegum bílastæðu við hús.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Nónsmára í Kópavogi þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og íþróttastarf í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is