MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - NÁNAR UM ÞAÐ HÉRHraunhamar kynnir: Nýtt fjölbýlishús í Nónhamri 4, vel staðsett í Hamranesi, nýjasta hverfi Hafnfirðinga. Hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Í húsinu eru 12 íbúðir sem skilast allar fullbúnar að utan sem og að innan án gólf... Sýna meira
MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI - NÁNAR UM ÞAÐ HÉRHraunhamar kynnir: Nýtt fjölbýlishús í Nónhamri 4, vel staðsett í Hamranesi, nýjasta hverfi Hafnfirðinga. Hverfið er vel staðsett gengt Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Í húsinu eru 12 íbúðir sem skilast allar fullbúnar að utan sem og að innan án gólfefna en með flísum á gólfum í forstofu,baðherbergi og geymslu, gólfhiti með stafrænum hitastillum í hverju rými. Í eldhúsi er innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Afhending í september 2023.Um er að ræða 90 fm, fjögurra herbergja íbúð með suðursvölum. Smelltu hér til að sjá aðrar eignir til sölu í Nónhamri 2-6.Húsið er staðsett innarlega í hverfinu og snýr einstaklega vel gagnvart sólu. Íbúðirnar eru vel skipulagðar og fylgja öllum íbúðum stórar og rúmgóðar svalir eða sérafnotasvæði. Lýsing eignarinnar skv. teikningu:Forstofa með fataskápum. Geymsla innan íbúðar með glugga. Gott hol.Björt stofa og þaðan er utangengt út á svalir.Eldhús með smekklegri innréttingu, eldunartæki frá AEG. Rúmgott hjónaherbergi með fataskápum.Tvö herbergi með fataskáp.Flísalagt baðherbergi með innréttingu, þvottaaðstöðu og sturtu. Innréttingar eru GKS-gamla kompaníið eldunartæki frá AEG. Sjá nánar í skilalýsingu.Mikið er lagt upp úr hönnun og er húsið klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggar og því á húsið að vera viðhaldslétt. Lóðin verður falleg og vel frágengin með leiksvæði. Þetta eru fallegar íbúðir sem vert er að skoða. Bygginaraðilar er Byggingarfélag Gunnars og Gylfa, BYGG sem eru þekktir fyrir traust og góð vinnubrögð í áratugi. Kaupendur greiða skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati þegar það verður lagt á.Nánari upplýsingar veita sölumenn Hraunhamars:Ársæll Steinmoðsson, löggilur fasteignasali, s. 896-6076, Hlynur Halldórsson, löggiltur fasteignasali, s. 698-2603, Helgi Jón Harðarson, sölustjóri s. 893-2233, Glódís Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, s. 659-0510, Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 40 ára afmæli á árinu 2023. Hraunhamar, í farabroddi í 40 ár. – Hraunhamar.is Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.