LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: Glæsilega, bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á efstu hæð í góðu nýlegu lyftufjölbýli vel staðsett í Hamraneshverfinu í Hafnarfirði.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.Íbúðin er skráð 109,1 fm skv. HMS.
- Efsta hæð
- Gólfsíðir gluggar
- Hiti í gólfum
- Þrjú góð svefnherbergiNánari lýsing:Forstofa með fataskápum.
Alrými er Bjart og gott þar sem eldhús er opið inn í stofu.
Eldhús með smekklegri innréttingu frá GKS- gamla kompaníið og eldunartæki frá AEG. Rúmgóð eyja sem hægt er að sitja við. Helluborð á eyju.
Borðstofa/stofa er í opnu og fallegu rými þar sem er útgengt á góðar svalir í suðurátt.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum.
Tvö herbergi með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og walk in sturtu. Þvottaaðstaða á baðherbergi.
Geymsla er innan íbúðar.
Hefðbundin snyrtileg sameign, hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.
Húsið klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggar.
Lóðin er snyrtileg og með leiksvæði.
Bygginaraðilar hússins er Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, Bygg ehf.Leikskóli og skóli í göngufæri og öll helsta þjónusta, verslanir, sundlaug og íþróttamiðstöð Hauka í næsta nágrenni. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.