Borg fasteignasala kynnir eignina Nóatún 26. Glæsileg, vel skipulögð 4ra herb. íbúð á mjög góðum stað í göngufæri frá miðborginni. Íbúðin skiptist í andyri, gang ,tvær stofur, suður svalir, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi auk sérgeymslu og sameignar. Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðs... Sýna meira
Borg fasteignasala kynnir eignina Nóatún 26. Glæsileg, vel skipulögð 4ra herb. íbúð á mjög góðum stað í göngufæri frá miðborginni. Íbúðin skiptist í andyri, gang ,tvær stofur, suður svalir, tvö svefnherbergi, eldhús, baðherbergi auk sérgeymslu og sameignar. Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 201-1785, nánar tiltekið eign merkt 01-02, birt heildarstærð 82.2 fm. Þar af er íbúðin skráðir 73,4 fm og sérgeymsla í sameign merkt 00-06 er skráð 8,8 fm. Svalir eru út frá borðstofu. Fyrirhugað fasteignamat 2025: 59.650.000 kr.Nánari lýsing eignarinnar:Komið inn í forstofugang með fatahengi. Til hægri frá forstofu er eldhús eignar sem er með ágætri innréttingu. Búið er að steypa borðplötu , gott vinnupláss . Stofur eru samliggjandi, með parketi á gólfi og útgengi á suður svalir. Svefnherbergi eru með parketi á gólfum, eitt þeirra ( það minna) með lausum fataskápum. Er í dag notað sem fataherbergi/ skrifstofa. Hjónaherbergi var gert rýmra með að færa skápa í minna herbergið. Baðherbergi er með flísum á gólfi, baðkari með sturtuhaus og glugga með opnanlegu fagi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, sérgeymsla íbúðar og góð hjóla og vagnageymsla. Gott aðgengi er að kjallaranum og sameign öll hin snyrtilegasta. Framkvæmdir2015: Endurnýjað rafmagn í íbúð, tenglar, vírar, öryggi etc.2019: Endurnýjaðar vatnlagnir í þvottahúsum, niðurföll og settir upp vaskar í þvottahúsum.2022: Þak endurnýjað, skorsteinn fjarlægður, skipt um allt járn & timbur í þaki endurnýjað. Endurnýjað / endursmíðaðar timbursvalir í risi. Skipt um alla glugga í rishæð og aðrir gluggar endurnýjaðir sem að metnir væru ónýtir (Verksýn sá um úttekt og eftirlit með framkvæmdum)2023: Rafmagn í sameign endurnýjað, nýjar töflur og mælar. Engar framkvæmdir hafa verið ákveðnar / samþykktar á húsfundum, en vilji í fjölbýlinu til að drena og fóðra frárennslislagnir. Lagnir voru í því samhengi myndaðar undir húsinu 2021 og ástand metið þannig að ekki væri brýn þörf á að endurnýja þær, en það styttist í að það þurfi amk að fóðra þær. Einstaklega góð staðsetning í göngufæri frá miðborginni og er mjög góð þjónusta í næsta nágrenni m.a góð Bónusverslun og góðir skólar.Nánari upplýsingar veita:Börkur Hrafnsson , í síma 8924944, tölvupóstur Úlfar Þór Davíðsson, í síma 788-9030, tölvupóstur .