Einstakt og fallegt 3ja herbergja raðhús við Njálsgötu 22 á tveimur hæðum með sérinngangi, heitum potti, verönd og svölum. Eignin er alls 93,8 fm og skiptist þannig að neðri hæð er 48,5 fm og efri hæð 45,3 fm skv Fasteignaskrá.
Nánari lýsing: Forstofa með flísum á gólfi og opið fatahengi. Forstofu herbergi með parketi á gólfi og skáp.Gott geymslurými er fyrir ofan skáp. Eldhús með fallegri viðarinnréttingu, eldunareyja með gashelluborði. Stæði fyrir uppvottavél og ísskáp. Ofn í vinnuhæð. Útgengt úr eldhúsi út á sér sólpall með skjólveggjum og heitum potti. Baðherbergi með sturtu, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Þvottaaðstöðu er haganlega komið fyrir undir stiga, undir stiga er einnig gott geymslurými. Fallegur viðarstigi er upp á efri hæðina.
Efri hæð: Rúmgóð stofa og sjónvarpshol með parketi á gólfi. Útgengt úr stofu á góðar sólarsvalir sem vísa inn í garð. Hjónaherbergi með skápum og parket á gólfi.
Einstök eign á frábærum stað sem vert er að skoða. Stutt í allt sem miðbær Reykjavíkur hefur uppá að bjóða eins og veitingastaði, söfn, menningu, verslun og fleira.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is