Íbúð
Íbúð á 1. hæð í fjölbýlishúsi. Rúmgóð stofa, rúmgott svefnherbergi, opið eldhús, baðherbergi með baðkari og sturtu, sér þvottaherbergi. Forstofa með skápum. Aðskilin geymsla nálægt íbúð (7,6 fm). Hjóla- og vagnageymsla í bílakjallara. Leiksvæði á sameiginlegri lóð með nýlegum leiktækjum.
Stofa
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, stórum gluggum til suðurs og útgengi á sérafnotaflöt til suðurs.
Eldhús
Eldhús opið við stofu. Með parketi á gólfi, hvítri/beyki eldhúsinnréttingu, Siemens bakaraofni, helluborði og flísum á milli skápa.
Svefnherbergi
Svefnherbergi með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs.
Baðherbergi
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Flísalagt baðkar með sturtutækjum, flísalögð sturta, vaskur, lítil innrétting fyrir ofan og salerni.
Þvottahús
Sér þvottaherbergi með dúk á gólfi, tenglum fyrir þvottavél og þurrkara, hillum og vaski.
Geymsla
Aðskilin geymsla (7,6 fm) nálægt íbúð. Hjóla- og vagnageymsla í bílakjallara.
Bílskúr
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara með nýlega uppsettri hleðslustöð.
Garður
Sérafnotaflötur hellulagður og tyrfður, afgirtur með gróðri, skjólgóður og til suðurs. Sameiginlegur garður með leiksvæði (rennibraut, sandkassi, rólur, bekkur).
Svalir/þak
Sérafnotaflötur (svalir) til suðurs.
Félagssvæði
Sameiginlegt leiksvæði með rennibraut, sandkassa, rólum og bekk.
Önnur herbergi
Forstofa, þvottaherbergi.
Tæki
Siemens bakaraofn. Tenglar fyrir þvottavél og þurrkara í þvottaherbergi.