Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Vel skipulögð,vönduð og rúmgóð 153,9 fm. þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu álklæddu lyftu fjölbýlishúsi við Naustavör 12 í 200 Kópavogi , íbúð merkt 0212. Óhindrað sjávarútsýni að s... Sýna meira
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Vel skipulögð,vönduð og rúmgóð 153,9 fm. þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í vönduðu álklæddu lyftu fjölbýlishúsi við Naustavör 12 í 200 Kópavogi , íbúð merkt 0212. Óhindrað sjávarútsýni að smábátahöfninni, friðlýstu huggulegt svæði þar við hlið og í átt að Esju og víðar.Skipulag telur: Tvö rúmgóð herbergi, annað þeirra með fataherbergi. Eldhús með eyju í opnu rúmgóðu alrými með borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu. Glæsilegt útsýni. Baðherbergi með sturtu. Tvennar svalir, bæði norður og suð-vestur svalir. Sér þvottahús innan íbúðar og sér merkt stæði (B-47) í lokaðri og upphitaðri bílageymslu með sér geymslu inn af því bílastæði. Búið er að tengja rafmagn að stæði, tilbúið fyrir uppsetningu á hleðslustöð.Skv. Þjóðskrá Íslands er íbúðin sjálf er skráð 138,7 fm. Geymslan er skráð 15,2 fm. Samtals stærð er 153,9 fm.Bókið skoðun hjá Gunnar Sverrir í síma 862-2001 / Smelltu á link til að sjá íbúð í 3-DNánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp sem hægt er að loka af, aðgengi er frá anddyri að þvottahúsi með flísum á gólfi, innréttingu, handlaug og tengi fyrir þvottavél. Vandað og fallegt parket er á allri íbúðinni að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi, þar eru vandaðar flísar. Stofan, sjónvarpstofa, eldhús og borðstofa er mjög rúmgóðu og björtu alrými með óhindrað útsýni til sjávar og í átt að Esju. Eldhús innrétting er frá Brúnás, spónlögð með eik, hvítum efri skápum og hvítri borðplötu. Útbúið með AEG heimilistækjum, bökunarofni í vinnuhæð, helluborði með háfi yfir. Út frá stofu er útgengi út á norður svalir íbúðar. Frá sjónvarpsstofu er gangur með tveimur svefnherbergjum og baðherbergi. Hjónaherbergi er mjög rúmgott með sér fataherbergi með vönduðum fatahirslum. Herbergi II er einnig mjög rúmgott með fataskáp og útgengi út á skjólgóðar suð-vestur svalir. Baðherbergi er með flísum á bæði veggjum og á gólfi, bað innréttingu með gott skúffupláss og handlaug. Spegill er þar fyrir ofan og einn skápur. Handklæðaofn, upphengt og innbyggt salerni ásamt flísalögðum sturtubotni og sturtu með glerþili. Hitastýrð blöndunartæki frá Tengi eru við sturtu. Sér geymsla íbúðar er staðsett fyrir aftan sér stæði íbúðar í bílageymslu hússins. Um er að ræða skemmtilega og eftirsótta staðsetningu við smábátahöfnina á Kársnesi í Kópavogi, vel staðsett á móti Nauthólsvíkinni í fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700, af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-