Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu afar fallega, bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð með ca. 38 fm verönd og fallegu útsýni í nýlegu þriggja hæða húsi við Naustavör 10 í Kópavogi. Eignin er skráð 93,5 fm að stærð og skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherber... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu afar fallega, bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð með ca. 38 fm verönd og fallegu útsýni í nýlegu þriggja hæða húsi við Naustavör 10 í Kópavogi. Eignin er skráð 93,5 fm að stærð og skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhús og rúmgóða stofu með útgengi á stóra verönd með fallegu útsýni yfir Nauthólsvíkina, Fossvoginn, Öskjuhlíðina, Perlunni, smábátahöfnina og víðar. Eigninni fylgir bílastæði í upphitaðri bílageymslu, þar sem er tengi fyrir rafhleðslustöð, og rúmgóð sérgeymsla í kjallara. Einstök eign við sjávarsíðuna!Nánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum.Stofa: Er rúmgóð og björt með eikarparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu og er með gluggum til vesturs og norðurs og útgengi á stóra viðarverönd þar sem eru rafmagnstenglar og kvöldlýsing. Eldhús: er bjart og rúmgott með gluggum á tvo vegu, eikar viðarparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu frá Brúnás þar sem eru flísar á milli skápa og lýsing undir skápum. Í eldhúsinnréttingu er AEG bakaraofn, keramik helluborð og stál gufugleypir.Svefnherbergi: eikarparket á gólfi, skápar sem ná upp í loft og glugga til vesturs.Baðherbergi: er með flísum á gólfi og á veggjum, rúmgóð flísalögð sturta með glerþili, upphengt salerni, falleg innrétting við vask og handklæðaofn innan rýmis.Þvottaherbergi: er í sér rými innan íbúðar og með útöndun. Á gólfi eru flísar og í þvottahúsi er tengi fyrir þvottavél/þurrkara og ágætt vinnuborð með vask. Bílastæði (02B12): er staðsett í upphitaðri bílageymslu og við stæði er rafmagnstengill. Sameign: Er snyrtileg með flísum og teppi á gólfum. Lyfta er í húsinu. Ytri forstofa sameignar með mikilli lofthæð og gler rafmagnsrennihurðum. Rafmagnsopnun á hurðum í sameign.Hjóla- og vagnageymsla: Eru tvær talsins. Önnur er staðsett frá ytri forstou í sameign og hin í kjallara með útgengi á baklóð. Báðar rúmgóðar með máluðu gólfi.Húsið: Var byggt af Bygg árið 2015/2016, er klætt að mestu með báruáli og lítur vel út.Lóðin: Er frágengin með fallegum gróðri, hellulögðum stéttum þar sem er snjóbræðsla og falleg lýsing. Næg bílastæði á lóð. Falleg eign við sjávarsíðuna þar sem stutt er í fallegar hjóla- og gönguleiðir, m.a. við Öskjuhlíð, Fossvog og um nærliggjandi sveitarfélög, og stutt er í verslun, þjónustu, sundlaug, íþróttasvæði og grunnskóla.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., s: 896-2953,