Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og Fasteignasalan TORG kynnir glæsilega 3 til 4 herbergja íbúð með fallegu sjávarútsýni og bílskúr við Naustabryggju 55Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 166,4 m2 og þar af er bílskúr 20,5 m2
Íbúðin er staðsett á 1. hæð í lyftuhúsnæði byggðu árið 2000 og stendur næst smábátabryggjunni og hefur íbúðin því
óhindrað sjávarútsýni yfir bryggjuna og í átt að Viðey og Hamrahverfinu í Grafarvogi. Komið er inn í forstofu, en til vinstri er
baðherbergi sem hefur nýlega verið uppgert. Til hægri er rúmgott hjónaherbergi, en það var áður
tvö herbergi sem nú er búið að sameina í eitt. Frá forstofu gangi er komið inn í stóra og bjarta borðstofu- og stofu með gólfsíðum gluggum með
einstöku útsýni í átt að smábátabryggjunni og út að sjó. Þaðan er útgengt út á svalir sem snúa í norð-vestur. Eldhús og þvottahús er staðsett til hliðar við borðstofu en frá eldhúsi er útgengt út á suð-vestur svalir. Frá stofu er stigi niður á neðri hæð, þar sem er sjónvarpshol og rúmgott herbergi með fataherbergi inn af. Það er innangengt í bílskúrinn frá sameign, en hann er með mikilli lofthæð og
því góðu millilofti sem er notað sem geymsla.Nánari lýsing: Forstofa/gangur: Parket á gólfi sem
nýlega er búið að pússa upp og gott skápapláss.
Baðherbergi:
nýlega endurnýjað, flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, "walk-inn" sturta með nýlegum blöndunartækjum og falleg innrétting.
Hjónaherbergi: mjög rúmgott (teiknað sem tvö svefnherbergi) með parketi á gólfi og stórum fataskápum, tveir inngangar og útgangur út á svalirnar sem snúa í suð-vestur.
Stofur: parket á gólfi, borðstofa er rúmgóð og
gólfsíðir gluggar veita góða birtu og einstakt sjávarútsýni. Útgengt út á rúmgóðar svalir með óhindruðu sjávarútsýni frá stofu.
Eldhús: ljós innrétting með góðu skápaplássi,
nýlegt span helluborð og parket á gólfi, útgangur út á góðar "grill" suð- vestur svalir.
Þvottahús: Inn af eldhúsinu með innréttingu fyrir þvottavél- og þurrkara og mjög góðu skápaplássi.
Neðri hæð:Gengið er niður teppalagðan stiga frá stofu, á neðri hæð íbúðarinnar.
Sjónvarpshol: rúmgott með parketi á gólfi.
Herbergi II: parketi á gólfi og fataherbergi inn af (teiknað sem geymsla).
Bílskúr: Sjálfvirkur hurðaropnari, innangengt úr sameign, heitt og kalt vatn, hátt til lofts og gott milliloft sem notað er sem geymsla.
Sameiginleg vagn- og hjólageymsla er á jarðhæð hússins.
Sameiginleg bílastæði eru við húsið og fallegar gönguleiðir meðfram bryggjunni í átt að Vogahverfi og inn í Hamrahverfið í Grafarvogi. Vel rekið húsfélag og snyrtileg og vel hirt sameign.
- Skv. teikningum gæti íbúðin auðveldlega verið með fjórum svefnherbergjum og góðri stofu.
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð með fallegu sjávarútsýni sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir: Guðný Ösp, lgf. s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.