RE/MAX - Stefán Jarl og Erling Proppé kynna til sölu: Snotur þriggja herbergja íbúð alveg við sjóinn að Naustabryggju 38. Tvennar svalir og þar af yfirbyggðar 17,3 m2 suðursvalir. Íbúðinni fylgir einnig stæði í lokaðri bílageymslu. Parket íbúðar er nýtt ásamt nýrri ofnasamstæðu auk þess sem íbúðin er nýlega máluð.Eignin er skráð skv. fasteignamati HMS 86,2 m2, þar af er geymslan 6,8 m2.Sameign er snyrtileg en það eru einungis fjórar íbúðir í stigaganginum.
Nánari lýsing:Forstofa: parket á gólfi, fataskápur.
Gangur: parket á gólfi.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, mjög fallegt sjávarútsýni, yfir bryggjuna og í átt til Esju, björt stofa með litlum útsýnis svölum sem snúa í norður.
Eldhús: parket á gólfi, viðarlituð eldhúsinnrétting góðu vinnuplássi og nýrri ofnasamstæðu í vinnuhæð. Rúmgóð eyja hvít að lit, sem hægt er að sitja við og njóta útsýnisins í stofunni.
Þvottahús: Innaf eldhúsi er rúmgott þvotthús með hillum.
Baðherbergi: flísar á gólfi með sturtu og upphengdu salerni ásamt innréttingu undir vaski.
Hjónaherbergi: parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar, útgengi út á stórar suðursvalir(17,3 m2).
Herbergi: parket á gólfi og innfelldur fataskápur.
Geymsla: sér 6,8 m2 geymsla staðsett í sameign á 1. hæð.
Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla staðsett á 1. hæð í sameign, fyrir framan húsið eru bílastæði sem tilheyra húsinu. Aftan við húsið er göngustígur á trébrú við sjávarsíðuna ásamt setubekkjum.
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Jarl lgf. - stefan@remax.is // 892 9966Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.