Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Mýrarland 14, nýlegt og snyrtilegt 176,7fm, einbýlishús með bílskúr innst í botnlangagötu á Selfossi.
Pallur og pottur.Komið er inn í flísalagða forstofu með hengi og stórum skápum fyrir yfirhafnir.
Inni á hægri hönd er opið og sameiginlegt rými stofu og eldhúss, en herbergja- og þvottahúsgangur fram í bílskúr til vinstri.
Í stofunni eru gluggar að gólfi á tvo vegu og gengt út á stóran pall. Eldhúsið er búið IKEA innréttingu og vönduðum tækjum frá SIEMENS, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél sem fylgja við sölu. Vandað parket á gólfum þessara rýma sem og á herbergjum og gangi.
Svefnherbergin eru fjögur og fataskápar í þeim öllum, - hjónaherbergið stærst og með mesta skápaplássið.
Á baðherberginu er baðkar og flísalögð sturta með glerþili, skápur, upphengt klósett og handlaug á stóru borði með skúffum undir. Flísar á gólfi og upp á veggi.
Þvottahúsgangur með mikilli innréttingu og skolvaski, og gengt þaðan fram í rúmgóðan 44,9fm bílskúr með epoxy á gólfi, geymslu innaf og afstúkuðu klósetti. Gönguhurð út og rafdrifnar innkeyrsludyr með fjarstýringu.
Að utan er húsið klætt með lituðu liggjandi bárujárni, gluggar og hurðir eru ál/tré og bárujárn á þaki.
Stór pallur með heitum potti með SA hlið hússins og hleðslustöð fyrir rafbíla framan á bílskúrnum.
Mulningur í innkeyrslu. Leikskólinn Goðheimar í þægilegu göngufæri, og Sunnulækjarskóli og íþróttamannvirki bæjarins innan seilingar eftir góðum göngustígum.
Praktískt og gott fjölskylduhús á rólegum stað.
---VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN---Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.