Um er að ræða mikið endurnýjaðan sumarbústað úr timbri, 46.70 fm að stærð skv. skráningu HMS auk stakstæðrar geymslu sem er fyrir utan skráða fermetra. Húsið er byggt árið 1990 og stendur á 5.300 fm leigulóð úr landi jarðarinnar Grímsstaða. Húsið er úr timbri og panelklætt að utan. Við húsið er ágætur sólpallur ásamt skjólveggjum. Húsið er kynt með rafmagni, nýleg varmadæla loft í loft og hitakútur fyrir neysluvatn. Sumarhúsið er vel staðsett á gróinni og vel hirtri lóð.
Nánari lýsing: Húsið skiptist í forstofu, 3 herbergi, alrými, sem er setustofa og eldhús og baðherbergi með sturtu. Að auki er svefnloft yfir hluta hússins. Húsið er innréttað með panelklæðningu á veggjum og í lofti en pressaðar spónaplötur eru á gólfi. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð fyrir um 10 árum og er í góðu ástandi.
Bústaðurinn er nýlega málaður með smekklegum hætti og sólpallur endurbyggður fyrir um 10 árum. Vatn er hitað með gegnumstreymishitara.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum. Kostnaður kaupanda: Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald kr. 3.800,- á hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Engin umsýsluþóknun.