LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 kynna:Fallegur og vel skipulagður 40,4 fm sumarbústaður auk 7,1 fm rislofts í hinu vinsæla sumarhúsahverfi í Úthlíð.
Tvö svefnherbergi eru á aðalhæð og svefnrými í rislofti - gisting fyrir amk 6 manns.
Fallegt útsýni. Geymsluskúr við hlið hússins.
Örygglishlið eru inn á svæðið sem er kynnt með hitaveitu.
Öflugt sumarhúsafélag er rekið í Úthlíð og þar er að finna 9 holu golfvöll hjá Golfklúbbi Úthlíðar og veitingastað í Réttinni. Stutt er á Geysi, Reykholt, Flúðir, Laugarás og Laugarvatn og er svæðið um 100 km frá höfuðborgarsvæðinu.Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
sveinn@landmark.isForstofa er með fatahengi
Svefnherbergin eru tvö með 150 cm rúmi í hvoru þeirra, fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með hvítri snyrtilegri innréttingu.
Baðherbergið er með sturtu og innréttingu. Dúkur á gólfi.
Stofan og borðstofan eru í opnu rými með harðparketi á gólfi. Útgengt út á verönd.
Risloftið er rúmgott og þar eru tvö 90 cm rúm og sófi.
Verönd er austan, sunnan og vestan meginn við húsið. Heitur pottur (hitaveituskel) á verönd.
Ný rotþró sett upp 2021. Húsið stendur á 5.000 fm leigulóð. Lóðarleiga árið 2025 var um 154.000 kr.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Eyland Lgf í síma 6 900 820 og sveinn@landmark.is
---------------------------------------------------------- Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat