Fasteignasalan Hvammur 466 1600Móasíða 9b - Falleg og mikið endurnýjuð 4ra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð á vinsælum stað í Síðuhverfi - stærð 114,3 m²Eignin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, geymslu og þvottahús. Fyrir framan er vandaður geymsluskúr.
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi. Útidyrahurð hefur verið endurnýjuð.
Eldhús, falleg hvít innrétting með hvíttaðri viðar borðplötu og flísum á milli skápa. Mjög gott skápa- og bekkjarpláss. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Vandað planka parket á gólfum og innfelld lýsing í loftum. Úr stofu er gengið út á rúmgóða timbur verönd með heitum potti.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með planka parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi er með físum á gólfi og hluta veggja, spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, handklæðaofn og baðkar með sturtutækjum. Innfelld lýsing er í lofti.
Geymsla er með planka parketi á gólfi og hillum. Hleri er í loftinu til að fara upp á loftið.
Þvottahús er við hliðina á forstofu og með ljósum flísum á gólfi og ljósri sprautulakkaðri innéttingu með skolvaska og góðu skápaplássi. Flísar eru á gólfi og opnanlegur gluggi.
Vandaður
geymsluskúr er fyrir framan húsið á steyptri plötu, flísalagður og með gólfhita
Annað- Gólfhiti er í öllum rýmum.
- Eldhúsinnrétting og parket var endurnýjað árið 2016.
- Búið er að endurnýja hluta af raflögnum og tengla.
- Búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð.
- Ljósleiðari er kominn inn.
- Hitalagnir eru í stétt fyrir framan íbúðina.
- Eignin er til afhendingar í september 2026.
- Eignin er í einkasölu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.