Lind fasteignasala og Ómar Hvanndal lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna: Móaflöt 41. 219,2 fm endaraðhús á einni hæð. Húsið er staðsett á stórri og gróinni hornlóð á þessum eftirsótta stað í Garðabæ. Húsið þarfnast töluverðra endurbóta. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.
Nánari lýsing:Forstofa er rúmgóð með fataskápum.
Gestasalerni er staðsett inn af forstofu.
Stór og björt stofa með parketi á gólfi og arni. Í stofu eru gólfsíðir gluggar til suðurs. Útgengt er út á hellulagða verönd úr stofu.
Borðstofa er staðsett samhliða stofu en arin skilur rýmin að.
Eldhús með viðarinnréttingu með hvítum hurðum og borðkrók.
Hjónaherbergi er rúmgott með miklu skápaplássi. Úr hjónaherbergi er útgengt út á verönd.
Þrjú barnaherbergi en möguleiki er á að bæta við því fjórða þar sem nú er opið sjónvarpshol.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa og baðkari.
Tvöfalldur bílskúr er við húsið sem gengið er inn í af öðrum svefnherbergisgangi. Búið er að loka annarri bílskúrshurðinni og er hann nýttur sem geymsla/herbergi í dag.
Þvottahús ásamt lítilli geymslu er staðsett fyrir innan bílskúr, en gengið er inn í þvottahús af öðrum svefnherbergisgangi.
Húsið stendur á gróinni hornlóð með miklum trjágróðri, grasfleti og hellulagðri verönd við húsið. Lóðin er skráð 1.107 fm að stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS. Á lóðinni er búið að koma fyrir litlum gám sem nýttur hefur verið sem útigeymlsa, en geymslan er komin til ára sinna og þarfnast viðhalds.
Eignin er skráð 219,5 fm í fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðarrými 163,3 fm. og bílskúr 56,2 fm.
Eignin er í eigu dánarbús og þekkja eigendur því hvorki ástand né geta borið ábyrgð á ástandi hennar umfram það sem sjá má við venjulega sjónskoðun. Kaupendum er því bent á að kynna sér ástand eignarinnar vel og leita sér eftir atvikum aðstoðar sérfróðra manna við skoðun. Fyrir liggur að eignin þarfnast töluverðra endurbóta.
Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.