BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐVANGUR 6 ÍBÚÐ 404 , 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu miðsvæðis á Egilsstöðum. Stutt í alla almenna þjónustu og verslanir. Hús fyrir heldri borgara 55+. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er byggt úr forsteyptum... Sýna meira
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu MIÐVANGUR 6 ÍBÚÐ 404 , 700 Egilsstaðir. Þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu miðsvæðis á Egilsstöðum. Stutt í alla almenna þjónustu og verslanir. Hús fyrir heldri borgara 55+. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum árið 2010. Eignin skiptist í íbúð 105.0 m² og geymslu 14.6 m² samtals 113.8 m² samkvæmt skráningu HMS. Skipulag eignar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er sérgeymsla.ATH - Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús miðvikudaginn 26. júní 2024 kl 12:00-12:45 vinsamlega bókið komu á opið hús hjá BYR fasteignasölu | s. 483-5800 | |Tekið verður á móti tilboðum eftir opið hús, tilboðum er skilað inn fimmtudaginn 27. júní 2024 milli kl 9:00-15:00, öllum tilboðum verður svarað á sama tima föstudaginn 28. júní 2024.Nánari lýsing: Forstofa með tvöföldum fataskáp. Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum eignarinnar.Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá stofu út á yfirbyggðar (svalalokun)14.6 m² suðursvalir með útsýni að Lagarfljóti. Eldhús með Brúnás innréttingu, AEG helluborð, háfur og AEG ofn í vinnuhæð. AEG uppþvottavél og ísskápur fylgja. Innbyggð lýsing er í efri skápum. Tvö svefnherbergi.Hjónaherbergi með sexföldum fataskáp, tvöfaldur fataskápur í minna herbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottahús er innan íbúðar, innrétting með hækkun fyrir tvær vélar, stálvaskur í borði. Í sameign er sérgeymsla 14.6 m².Gólfefni: Flæðandi harðparket frá Húsasmiðjunni á alrými, gangi og svefnherbergi. Flísar á anddyri, baðherbergi og þvottahúsi. Epoxy á svalagólfi. Gólfhiti er í íbúðinni, Danfoss stýringar á veggjum. Rúllugardínur í stofu og myrkvunarrúllugardínur í svefnherbergjum fylgja. Brúnás innréttingar eru í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi. Sameign:Sameiginlegur inngangur íbúða er á jarðhæð, þar eru póstkassar, myndavéladyrasími. Í kjallara er sérgeymsla íbúðar ásamt sérbílastæði í bílageymslu, geymsla er aftan við stæði í bílageymslu. Húsið er forsteypt, byggt árið 2010, fimm hæðir og kjallari. Húsið samanstendur af 27 séreignum, 22 íbúðum, þremur verslunarrýmum, einu þjónusturými og félagsaðstöðu fyrir aldraða.Í kjallara eru 20 sér geymslur, bílageymsla og ýmis rými í sameign allra. Á fyrstu hæð hússins er félagsaðstaða aldraðara, þrjú verslunarrými, eitt þjónusturými ásamt sameign. Á annarri hæð eru 6 íbúðir ásamt gangi út á þakgarð.Á þriðju og fjórðu hæð eru sex íbúðir á hæð, en á fimmtu hæð eru fjórar íbúðir. Steypt stétt er við húsið, bílastæði við húsið eru malbikuð sameiginleg, eitt merkt stæði er fyrir hreyfihamlaða er við aðalinngang hússins. Lóðin er sameiginleg 2973 m² leigulóð í eigu Múlaþings.Skráning eignarinnar hjá HMS:Fasteignanúmer: 230-0873.Stærð: Íbúð 113.8 m². Brunabótamat: 67.900.000 kr.Fasteignamat: 54.600.000 kr. Fasteignamat 2025: 55.300.000 krByggingarár: 2010.Eignarhald; 0.0404 Séreign rými: 01.0010 Geymsla 8.8 brúttó m². 01.0404 Íbúð 105 brúttó m². 01.0412 Svalir 14.6 brúttó m². Sameign sumra: 01.Y1 bílg.rými 42.1 brúttó m². ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala