Betri Stofan og Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is kynna: 84,6 fm risíbúð við Miðtún 90. Íbúðin er ósamþykkt en björt og vel skipulögð þriggja herbergja risíbúð í þríbýli á vinsælum stað í 105 Reykjavík.
Íbúðin telur hol, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, kalda geymslu í stigagangi, sameiginlegt þvottahús í kjallara og útigeymslu undir útitröppum.
Nánari lýsing:
Inngangur: Sameiginlegur og teppalagður stigi upp í íbúðina. Köld geymsla: Á vinstri hönd í stiganum.
Stofa og borðstofa: Undir súð að mestu, gluggi til suð-austurs og kvistur og gengt út á litlar svalir til suð-vesturs, parket á gólfi.
Eldhús: Helluborð í frístandandi eyju með skúffum og skápum og háfur yfir, gert ráð fyrir ísskáp við hliðina. Við vegginn er bakarofn í þægilegri hæð og gott skápa- og borðpláss, gluggi í kvisti og geymsluskápur út undir súðinni, flísar á gólfi, að herbergjum og við inngang.
Svefnherbergi: Bæði vel rúmgóð, góðir fataskápar í öðru, lágir geymsluskápar undir súð í báðum og harðparket á gólfum.
Baðherbergi: Undir súð með þakglugga. Nýlegt upphengt klósett, baðkar og handlaug á skáp, flísar á gólfi.
Þvottahús: Sameiginlegt í kjallara, hver með sína vél og ágætt snúrupláss.
Útigeymsla: Undir útitröppum, skráð 8,3 fm.
Lóðin er 459 fm og er sameign húseiganda.
Þakjárn upprunalegt að mestu og farið að láta á sjá. Einhverjir gluggar þarfnast athygli innan tíðar.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.