Lf-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali
thordis@lindinfasteignir.is kynna:
Miðstræti 24, Neskaupstað íbúð 0201Lýsing eignar
Mikið endurnýjuð íbúð þar sem herbergjaskipan hefur verið breitt sem gerir íbúðina opna og rúmgóða.
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á efri hæð í þríbýlishúsi miðsvæðis í Neskaupstað.
Sameiginlegt þvottahús er á neðri hæð ásamt geymslu í séreign íbúðarinnar.
Íbúðin er vel skipulögð og nýlega uppgerð að innan og einnig er útihurð nýleg og einnnig hurð á svölum.
Komið er inn í nýlega uppgerða forstofu með flísum á gólfi og gólfhita. Opið er inn í hol en nýir eigendur geta sett hurð í karminn ef vill.
Eldhús og stofa eru í sama rými eftir endilangri suðurhlið íbúðarinnar.
2 svefnherbergi eru í íbúðinnni, annað nokkuð rúmgott og eru svalir út af því, hitt herbergið er minna og úr því er gengið niður í sameign þar sem geymslur eru og sameiginlegt þvottahús og hitakompa.
Nýlegt parket er á öllum gólfum á efri hæðinni nema forstofu og baðherbergi sem eru með flísum og gólfhita.Raflagnir og tafla hefur verið endurnýjað og tenglum var í leiðinni fjölgað. Einnig hefur verið bætt við útiljósum með sólúri og fræst fyrir 2 veggljósum í stofu.
Baðherbergi er nýlega uppgert með sturtu. Fibo plötur eru á veggjum og flísar á gólfi.
Gólfhiti er á baðherberginu.
Innihurðir eru nýlegar.
Húsið var klætt að utan ca. árið 2000. Gluggar og gler er eitthvað aðeins eldra.
Vatnslagnir á baðherbergi og í eldhúsi íbúðarinnar voru endurnýjaðar nýlega samhliða breytingum á þessum rýmum.Að sögn eiganda íbúðar á neðri hæð hússins er búið að drena við húsið að neðanverðu og hálfa leið að ofanverðu (vestanmegin), en ekki var búið að drena ofan við íbúðina að austanverðu.