Fasteignasala Þórshafnar kynnir:
Miðholt 5er 106,6 fermetra, björt og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð í steyptu parhúsi, byggðu árið 1989.
Íbúðin skiptist í:Forstofa,flísar á gólfi og lítið fatahengi, til hægri eru dyr að þvottahúsi og geymslu, dúkur á þvottahúsgólfi en málað gólf í geymslu.
Við gang inn af forstofu er stórt eldhús á hægri hönd, upphafleg innrétting í þokkalegu standi.
Stofa við hlið eldhúss er aðskilin frá gangi með gluggum og hurð en milliveggur milli eldhúss og stofu nær ekki upp í loft. Panelklætt loft í stofu og eldhúsi er tekið upp og fylgir þakhalla. Úr stofu eru dyr að rúmlega 20 fm sólpalli.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir fimm árum, flísalagt og hiti í gólfi, sturtuhorn með botn í gólfhæð, salerni á gólfi og lítil innrétting.
Þrjú svefnherbergi eru samhliða að norðanverðu í íbúðinni, öll með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi. Miðherbergið er lítið en endaherbergin rúmgóð.
Köld útigeymsla er undir þakskeggi við hlið inngangs.
Þekktar endurbætur:Hitatúba og hitakútur eru síðan 2008-9,gler í stofuglugga er nýlegt, baðherbergi er endurnýjað 2021, þak er yfirfarið og málað sumarið 2025.
Fyrirsjáanlegt viðhald: Gluggar virðast ófúnir en þarfnast málunar, móða milli glerja í fjórum rúðum, nýtt gler og gluggalistar er æskileg framkvæmd á næstu árum.
Timbur í þakskeggi þarfnast málunar og mögulega þarf að endurnýja einhver borð, steyptir útveggir líta þokkalega út en styttist í málningu.
Parket í íbúðinni er líklega upprunalegt, í góðu lagi að sjá nema á eldhúsgólfi, það er farið að láta á sjá.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.