ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna:Mjög vel skipulagt og talsvert endurnýjað einbýlishús með tvöföldum bílskúr og garðskála á góðum stað í grónu hverfi á Selfossi.
Eignin er alls 217,3 m2 og er sambyggður bílskúr 59,2m2 þar af. Húsið er steypt, múrað og málað að utan, málað bárujárn er á þaki.
Að innan skiptist eignin í forstofu, gestasnyrtingu, hol, þvottahús, 4 svefnherbergi, baðherbergi, stofu, eldhús, þvottahús og búr. Flísar eru á gólfi í forstofu og þar er góður skápur, gestasnyrting er einnig flísalögð. Flísar eru á gólfi í holi, stofu og borðstofu. Í eldhúsi er glæsileg innrétting með góðum tækjum, flísar eru á gólfi. Málað gólf er í þvottahúsi og þar er snyrtileg innrétting, búr er innaf þvottahúsi. Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er góð innrétting, sturta og baðkar. Parket er á gólfi á öllum herbergjum. Á herbergisgangi er útgengt í bjartan sólskála og þaðan út í garð.
Bílskúr er tvöfaldur, fullmálaður að innan með 2 innkeyrsluhurðum..
Garður er mjög gróinn og skjólgóður mikið af trjátegundum er í garðinum. Sólpallar með skjólveggjum eru á baklóð, heitur pottur er á baklóð en þar er einnig kaldur pottur. Hellulagðar stéttar eru framan við húsið og innkeyrsla er hellulögð.
Rúmgóð talsvert endurnýjuð og mjög vel staðsett eign.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is