EIGNAVER 460-6060
Miðbraut 9 Hrísey. Rúmgóð 92 fm. þriggja herbergja íbúð í góðu parhúsi við Miðbraut 9 Hrísey. Eignin er afar vel skipulögð. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Góður sólpallur snýr til suðvesturs.
Nánari lýsing:Forstofa með parketi á gólfi, fatahengi.
Stofa með parketi á gólfi.
Eldhús góð eldri innrétting, gott vinnupláss, borðkrókur, parket á gólfi.
Hol með parketi. Úr holi er gengið inn í herbergi, baðherbergi og geymslu.
Svefnherbergi eru tvö, parket á gólfi , góðir skápar. Bæði herbergi eru rúmgóð.
Baðherbergi er með dúk á gólfi og hluta veggja, baðkar með sturtutækjum, hvít innrétting.
Þvottahús/Geymsla er með málað gólf, útgangur til norðurs.
Annað:- Á góðum stað efst í byggðinni í Hrísey.
- Fallegt er í Hrísey og þar fær fjallahringurinn fær að skarta sínu fegursta
- Hrísey er perla Eyjafjarðar.
- Húseignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu ehf.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is