Pálsson Fasteignasala kynnir:
-Víðáttumikið útsýni
-Sérinngangur
-Þrjú svefnherbergi
-Mikið endurnýjuðÍbúðin er skráð 109,9 fm samkvæmt HMS og er á frábærum stað á Seltjarnarnesinu.
Húsið er á eignarlóð og hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum tíðina, bæði að innan sem utan og allt framkvæmt af fagmönnum:
-Skipt var um alla glugga í íbúð og sameign 2024
-Drenað 2023
-Frárennsli eins og það leggur sig 2023
-Múrviðgert að utan 2025
-Skipt var um þak af fyrri eigendum
-Baðherbergi var nýlega alveg tekið í gegn.
-Vatnslagnir inn á baði 2020 og ný kaldavatnslögn 2023
-Nýlegur þrýstijafnari og forhitari í pípugrind
-Steinn á sólbekkjum í stofurými.
-Settir voru nýjir ofnar og ofnalagnir af fyrri eigendum
Stutt í golfvöll - göngufæri á Nesklúbbinn.
Íþróttasvæði Gróttu er skammt undan ásamt sundlaug og líkamsrækt.
Dýrðleg náttúra beint fyrir utan og græn svæði víða í grenndinni með fallegum göngu- og hjólaleiðum.
Fjara og smábátahöfn einnig nálægt.
Strætó stoppar skammt frá.
Skemmtileg eign á frábærum stað á Seltjarnarnesinu sem svo sannarlega vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isGengið er inn í flísalagða
forstofu með geymslurými sem notast sem fatahengi.
Við tekur stórt og mikið
hol sem tengir saman íbúðina. Það er parketlagt með góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi er stórt og bjart með útgengi á svalir með útsýni yfir hafið. Parketlagt með skápavegg.
Tvö önnur svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau bæði parketlögð.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og hefur allt verið tekið í gegn. Míkrósement var sett á veggi og lakkað yfir. Gólfhiti, góður vatnshalli í walk-in sturtu, handklæðaofn, ný vaskinnrétting með skúffuplássi, spegill með lýsingu, upphengt salerni og opnanlegt fag.
Eldhús er flísalagt og rúmgott með gluggum í tvær áttir. Eldhúsinnréttingin er með ljósum skápum og gráa borðplötu. Ljósar flísar eru á milli efri og neðri skápa.
Stofa er sérlega stór og björt með gluggum í þrjár áttir. Parketlögð og úr henni er einnig útgengt út á svalir.
Rúmgóð
sérgeymsla er í sameign.
Þvottahús er í sameign.
Hjólageymsla er einnig í sameign.
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.