Melhúsasund, Hrauborgir, Grímsnes-og Grafningshreppi: Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið). Fasteignaland kynnir: Melhúsasund 10 í Hraunborgum í Grímsnes-og Grafningshreppi. Um ræða 62,2 fm sumarhús auk millilofts ca. 22 fm. Gestahús sem er skráð 27 fm. Á lóðinni er einnig ca. 12 fm skáli sem staðsettur er á sólpalli. Skýli eða geymsla er einnig á lóðinni ásamt gróðurhúsi. Lóðin er 5000 fm leigulóð gróin og kjarri vaxin. Í Þessu húsi er hitakútur fyrir neysluvatn og rafmagnsofnar. Þetta er hitaveitusvæði og því möguleiki að taka inn hitaveitu.
Lýsing á eign: Forstofa með flísum á gólfi, fatahengi og góðu skápaplássi. Hol með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Tvö herbergi með parketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í gólf og gólf með fallegari innréttingu og sturtuklefa. Tengi fyrir þvottavél. Stofan og eldhúsið er í sama rými með góðri lofthæð og parketi á gólfi. Stofan er með útgengi út á sólpall. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu og vönduðum tækjum.
Gestahús: Tvískipt, annar hlutinn skiptist í herbergi með parketi á gólfi og eldhúskrók með helluborði með tveimur hellum og ísskáp. Baðherbergi með flísum á gólfi og útgengi út á sólpall. Hinn hlutinn er geymsla með innkeyrsluhurð og hentar fyrir golfbíl eða fjórhjól.
Skáli: Ca. 12 fm staðsettur á sólpalli með flísum á gólfi.
Stórir og miklir sólpallar með girðingu og skjólgirðingu. Heitur pottur með vatnshitara.
Á lóðinni er gróðurhús og skýli.
Þetta er falleg og vel um gengin eign. Góð aðkoma og næg bílastæði.
Samhliða sölu á eigninni verður gerður nýr lóðarleigusamningur til 50 ára.
Hluti af búslóð getur fylgt með í kaupum á eigninni.
Inn á svæðinu er þjónustumiðstöð, sundlaug og hjólhýsasvæði.
Nánasta umhverfi býður upp á mikla fjölbreytni og sundlaug að Minni Borg sem er í ca. 5 km. fjarlægð.
Stutt er í alla þjónustu.Í þessu skipulagða sumarhúsahverfi er sundlaug, 9 holu golfvöllur og 18 holu golfvöllur er í Kiðjabergi.
Upplýsingar gefa:
Heimir Eðvarðsson, löggiltur fasteignasali s. 893-1485, netfang: heimir@fasteignaland.is
Árni Björn Erlingsson, löggiltur fasteignasali s. 898-0508 netfang: arni@fasteignaland.is
Jón Smári Einarsson, löggiltur fasteignasali s. 860-6400, netfang: jonsmari@fasteignaland.is