Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu 4ra herbergja nýuppgert endaraðhús á tveimur hæðum ásamt bílskýli.Á neðri hæð er forstofa, hol, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofa og á efri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.
Forstofa er flísalögð og þar er skápur.
Í þvottaúsi er epoxy á gólfi og hillur á vegg.
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd á baklóð frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er nýleg innrétting ásamt tækjum.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi, þar er innrétting,led spegill, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni og handklæðaofn. Allt er nýlegt á baðherbergi nema baðkar.
Góður járnstigi með tréþrepum er á milli hæða.
Svefnherbergin eru þrjú á efri hæðinni og hafa þau öll málað gólf.(Málað með epoxy yfir flísar). Góður skápur er í hjónaherbergi.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi, þar er ný innrétting og tæki, led spegill, sturtuklefi og upphengt salerni. Allt er nýlegt á baðherbergi.
*Hurð er út á svalir frá hjónaherbergi. Svalir í vestur.
*Allt er nýlegt á báðum baðherbergjum.
*Allt er nýlegt í eldhúsi - Ísskápur og uppþvottavél fylgja með eigninni.
*Búið er að endurnýja þakján.
*Búið er að endurnýja glugga og gler, útidyrahurð og svalahurðir.
*Afgirt verönd er á baklóð.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Magnússon lfs.
S: 420-4000 / 863-4495 - dori@studlaberg.is