Fasteignasalan Garður sími 562-1200 kynnir:******Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun*****Falleg og björt 72,2m², 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi frá 2004. Eignin er staðsett í námunda við fallegar gönguleiðir og náttúruperlur. Björt og falleg íbúð í góðu húsi þar sem stutt... Sýna meira
Fasteignasalan Garður sími 562-1200 kynnir:******Eignin er seld með fyrirvara um fjármögnun*****Falleg og björt 72,2m², 2ja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í lyftuhúsi frá 2004. Eignin er staðsett í námunda við fallegar gönguleiðir og náttúruperlur. Björt og falleg íbúð í góðu húsi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Skipting eignar skv. þjóðskráÍbúð: 62,7m²Forstofa, 1x svefnherbergi, salerni, þvottahús og samliggjandi stofa, borðstofa og eldhús. Geymsla: 9,5m² (merkt 0107)Samtals birt stærð íbúðar: 72,2m² skv. þjóðskráSvalir: 7,0m²Anddyri er opið inn í íbúð með parketi og góðum forstofuskáp. Eldhús á hægri hönd þegar komið er úr anddyri, snyrtileg innrétting með helluborði, innbyggðum ofni og tengi fyrir uppþvottavél. Hvítar flísar eru á milli innréttinga og loftræstitúða er í rýminu. Stofan og borðstofan eru samliggjandi eldhúsinu, parket á gólfi og gengt út á 7m² suðursvalir og er gott næði á svölunum þar sem langt er í næstu hús.Svefnherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og gluggum sem snúa út í suðurgarð. Baðherbergið er stílhreint, góð innrétting með handlaug, baðkar með sturtu, vegghengt salerni. Steinflísar á gólfi og hvítar flísar á veggjum og á hlið baðkarsins. Niðurfall í gólfi. Loftræstitúða er í rýminu.Þvottahúsið er innan íbúðar og er flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Niðurfalli er í gólfi. Loftræstitúða er í rýminu. Geymsla í sameign er 9,5m². Hjólageymsla er í sameign á jarðhæð. Íbúð á efstu hæð í lyftublokk í fallegu, barnvænu umhverfi. Blokkin er klædd að utan og lítur vel út. Frábær staður fyrir náttúruunnendur. Tekur nokkrar mínútur að ganga að Reynisvatni og margar frábærar gönguleiðir í nágrenninu.Smelltu hér til þess að fá söluverðmat á eignina þína þér að kostnaðarlausu.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU S. 562-1200 EÐA HJÁ SÖLUMÖNNUM;Halldór, Löggiltur fasteignasali S. 693-2916 – Sveinbjörn, Löggiltur fasteignasali S. 892-2916 - Þórður Grétarsson, Löggiltur fasteignasali S.897-3640 - Nína Björk Gunnarsdóttir, sölufulltrúi S. 820-0831 - Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður