LANDMARK fasteignamiðlun og Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega björt og fallega 4ra herb. enda íbúð á annari hæð í lyftuhúsi með mjög rúmgóðum svölum-verönd. Fallegt útsýni yfir í Heiðmörk og út á golfvöll. Húsið er vandað, á... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun og Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali, félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega björt og fallega 4ra herb. enda íbúð á annari hæð í lyftuhúsi með mjög rúmgóðum svölum-verönd. Fallegt útsýni yfir í Heiðmörk og út á golfvöll. Húsið er vandað, álklætt og viðhaldslétt með lyftu og rafdrifnum hurðum í sameign. Stutt í fallega útivistarmöguleika. Byggingaraðili er ÞG - verk.*** Allar upplýsingar veitir Freyja Rúnarsdóttir löggiltur fasteignasali síma 694-4112 eða ***FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT STRAX HÉR.SKIPTI Á PAR EÐA RAÐHÚSI Í HVERFINU KOMA TIL GREINA. Eignin er skráð samkv. fasteignamati og skiptist í íbúðarrými 119 fm.ásamt geymslu sem er skráð 6,4 fm.Birt flararmál samkv. þjóðskrá er 125,4 fm.Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu með tengi fyrir þvottavélar, baðherbergi, eldhús, borðstofu/stofu, stofu, þrjú svefnherbergi. Sér geymslu ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.Nánari lýsing:Forstofa er með góðum innbyggðum fataskápum.Eldhús er með innréttingu úr hnotu,góð eyja og innbyggð tæki.Borðstofa er í framhaldi af eldhúsi og er opin inn í stofu.Stofan er rúmgóð og björt með fallegu útsýni og glugga á þrjá vegu. Útgengt út á mjög rúmgóðar svalir sem snúa í átt að golfvelli og Heiðmörk. Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum.Svefnherbergi I er með fataskápum. Svefnherbergi ll er með fataskápum Baðherbergi er flísalagt með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og og flísalagðri walk-in sturtu. Gestasnyrting er flísalögð með tengi fyrir þvottavélar. Sér geymsla er á jarðhæð (6,4 fm.) Búið er að flísaleggja votrými en ekki búið að setja gólfefni á önnur rými og því kjörið tækifæri fyrir nýja eigendur að velja að eigin vali.***Virkilega fín eign og umhverfi allt til fyrirmyndar. Örstutt er í fallega göngu og útivistamöguleika ásamt skóla, leikskóla og golfvelli***Húsgjöld á mánuði eru kr: 22.352 .- Innifalið er almennur rekstur, húseigandatrygging,hiti, rafmagn í sameign, ræsting sameignar og rekstur lyftu.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarFáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA