Eignamiðlun kynnir:
Afar huggulegt raðhús hannað af Rut Káradóttir arkitekt. Húsið er á einni hæð með innbyggðum bílskúr við Maríugötu í Urriðaholti. Húsið stendur við stórt og mikið opið svæði.Eignin skiptist í anddyri, þrjú til fjögur svefnherbergi. Í dag eru tvö barnaherbergi, sjónvarpsherbergi og hjónasvíta. Tvö baðherbergi, opin og björt stofa og borðstofa, rúmgott eldhús með búri innaf, bílskúr og þvottahús. Innangengt er í bílskúr. Stór verönd á baklóð með heitum potti og útieldhúsi. Rúmgott hellulagt bílaplan framan við húsið ásamt verönd.
Rut Káradóttir arkitekt sá um alla hönnun að innnan. Sér smíðaðar innréttingar frá Beyki. Blöndunartæki og gólfefni frá Ebson. Heimilistæki í eldhús frá Siemens Studio Line. Lýsing frá Lumex með Free@home stýrikerfi. Hitaveitu heitapottur frá trefjum tengdur við Free@home kerfi.
Mikil lofthæð er í húsinu og stórir gluggar út í bakgarð. Hljóðloft er í alrými sem veitir góða hljóðvist.Staðsetning er mjög góð við útivistarsvæðin Heiðmörk, Vífilstaðavatn, Urriðavatn og golfvöllinn Odd/Urriðavöllur.
Bókið skoðun hjá Guðlaugi í síma 864-5464 eða með tölvupósti á netfangið gudlaugur@eignamidlun.is Nánari lýsing:Anddyri: Flísar á gólfi og góðir fataskápar.
Stofa: Björt og falleg stofa með gólfssíðum gluggum, innbyggðar innréttingar, mikil lofthæð og útgengt er út á verönd. Hljóðloft er í stofu og eldhúsi. Flísar á gólfi.
Eldhús: Falleg innrétting frá Beyki með marmara á borði, innfellt span hellurborð með innbyggðum gufugleypi, innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar í vinnuhæð, vínkælir og innbyggður ísskápur. Innaf eldhúsi er búreldhús sem hægt er að loka með rennihurð. Þar er innrétting og aðstaða fyrir auka ísskápa.
Sjónvarpsherbergi: Innbyggðar innréttingar og flísar á gólfi. Möguleiki að breyta í svefnherbergi.
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú. Góðir fataskápar í barnaherbergjum. Hjónasvíta er með miklu skápaplássi og baðherbergi. Parket er á gólfi í svefnherbergjum.
Baðherbergi: Eru tvö. Bæði baðherbergi eru með sturtu og glerskilrúmi. Innréttingar frá Beyki með stein á borðum og vaskar smíðaðir úr sama efni. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúr frá búreldhúsi.
Þvottahús: Er innan bílskúrs með góðum innréttingum.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðlaugur Ingi Guðlaugsson löggiltur fasteignasali gsm 864-5464 eða gudlaugur@eignamidlun.is ***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook