Guðmundur Þór Júlíusson & Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Tveggja herbergja íbúð í kjallara við Mánagötu 22.Íbúið er vel skipulögð og telur alls 53,6 fm, sem skiptist í forstofu, eldhús, svefnherbergi og stofu.
Gengið inn um sameiginlegan inngang.
Stofan er björt með glugga á tvo vegu, parket á gólfi.
Eldhúsið er með parketi á gólfi ágætu borð og skápa plássi.
Baðherbergið er með lítilli innréttingu, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Baðkar með sturtu aðstöðu. Gluggi er á baðherberginu.
Svefnherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og lausum fata skáp.
Þvottahús er í sameign, garðurinn er sameiginlegur.
Ath. gólfefni og innréttingar eru í eldri kantinum og þarfnast endurnýjunnar.
Skv. eiganda var:
Nýir gluggar 2023
Ný inntök á heitu og köldu vatni lagt inn í íbúðina (ótengt).
Skipt út ofnum 2023
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is
Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.