Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu glæsilega fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð og með sérinngangi í fjögurra hæða fjölbýli að Lundarbrekku 2 í Kópavogi. Eignin er skráð 106,6 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 92,7 m2 og geymsla 13,9 m2, og skiptist í forstofu, svefnherbergi, hj... Sýna meira
Heimili fasteignasala, s: 530-6500, kynnir til sölu glæsilega fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð og með sérinngangi í fjögurra hæða fjölbýli að Lundarbrekku 2 í Kópavogi. Eignin er skráð 106,6 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 92,7 m2 og geymsla 13,9 m2, og skiptist í forstofu, svefnherbergi, hjónaherbergi, fataherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu þaðan sem útgengt er á suður svalir eignar. Íbúðin er upphaflega teiknuð sem fjögurra herbergja en útbúið hefur verið fataherbergi úr einu svefnherberginu. Hægt er að breyta núverandi fyrirkomulagi aftur til fyrra horfs.Fyrir skoðun og nánari upplýsingar um eignina hafið samband við Brynjólf Snorrason, lgfs., Nánari lýsing:Aðkoma: Steypt stétt að sameiginlegum inngangi í húsið. Á gólfi í anddyri sameignar eru flísar og teppalagður stigi.Forstofa íbúðar: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur.Barnaherbergi: er inn af forstofu og þar er fataskápur, gluggi með opnanlegu fagi og á gólfi er parket. Hjónaherbergi: afar rúmgott með sér fataherbergi þar sem eru vandaðir skápar og gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi er parket. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtutæki. Hvít innrétting með góðu plássi. Vegghengt wc og í rýminu er gluggi með opnanlegu fagi.Eldhús: Flísar á gólfi. Stór innrétting þar sem flísalagt er á milli efri og neðri skápa. Bosch bakaraofn og Keramik helluborð með viftu yfir. Stofa: er í opnu og björtu rými með eldhúsi, parket á gólfi, stórir gluggar til suðurs og útgengi á sér svalir íbúðar. Geymsla: Stór læst geymsla á jarðhæð sem er skráð 13,9 fm auk sameiginlegrar hjóla- og vagnageymslu.Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni fyrir íbúðir hennar auk þess sem eign fylgir aðgangur að líkamsræktarherbergi sem er í sameign hússins.Lóð: Frágengin lóð með tyrfðri grasflöt.Skipt var um parket á íbúðinni árið 2015 og búið er að skipta út öllum miðstöðvarofnum íbúðar. Árið 2016 var húsið múrviðgert og málað, árið 2018 var járn á þaki endurnýjað og árið 2021 voru skólplagnir endurnýjað og lagðar drenlagnir.Falleg og snyrtileg íbúð í grónu hverfi þar sem stutt er í flesta þjónustu, leik- og grunnskóla.Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 2.500 kr. af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.5. Umsýslugjald til fasteignasölu 79.900. kr. m.vskÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun telji þeir þörf á því. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi. Heimili fasteignasala – á traustum grunni í 20 ár.Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.